1 askja kirsuberjatómatar
2 kúlur Mozzarella
fersk basilíkublöð
1 pakki hráskinka eða eins og 6 hráskinkusneiðar
1 skammtur basilíkupestó
Basilíkupestó
1 höfuð fersk basilíka
handfylli fersk steinselja
150 g ristaðar furuhnetur
50 g parmesanostu
1 hvítlauksrif
safinn úr ½ sítrónu
1 dl góð ólífuolía
salt og nýmalaður pipar
Aðferð:
- Skerið kirsuberjatómata í tvennt og leggið á pappírsklædda ofnplötu. Sáldrið smá ólífuolíu yfir og kryddið þá til með salti og pipar. Bakið við 180°C í 20 mínútur.
- Útbúið pestóið á meðan tómatarnir eru í ofninum. Setjið allt í matvinnsluvél eða maukið með töfrasprota, geymið í kæli þar til þið ætlið að bera réttinn fram.
- Raðið hráskinku á fallegt fat eða disk, rífið niður Mozzarella og dreifið yfir, raðið tómötum og basilíkublöðum ofan á. Að lokum setjið þið nokkrar matskeiðar af pestói yfir réttinn og berið einnig pestóið fram með réttinum í sér skál.