Handbolti

Gunnar Steinn missir af næsta leik Gummersbach vegna meiðsla

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gunnar Steinn í leik með íslenska landsliðinu á EM 2014.
Gunnar Steinn í leik með íslenska landsliðinu á EM 2014. vísir/daníel
Landsliðsmaðurinn Gunnar Steinn Jónsson missir væntanlega af næstu leikjum Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta vegna meiðsla.

Gunnar Steinn sneri sig á ökkla í leiknum gegn Hamburg í síðustu umferð og missir af þeim sökum a.m.k. af leiknum gegn Melsungen næsta laugardag. Gunnar Steinn þarf að hvíla næstu daga áður en staðan á honum verður tekin á ný.

Gummersbach tapaði leiknum gegn Hamburg, 21-30, en liðið er í 10. sæti deildarinnar með fjögur stig eftir fjóra leiki.

Gunnar Steinn er á sínu öðru tímabili með Gummersbach en hann kom til þýska liðsins frá Nantes í Frakklandi sumarið 2014.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×