Innlent

Formaður Samfylkingarinnar vill vita hvað kalli á aukinn viðbúnað á Miðnesheiði

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, vill að stjórnvöld skýri út fyrir Alþingi hvaða hagsmunir kalli á aukinn viðbúnað á Miðnesheiði. Hann segir sérkennilegt að Bandaríkjamenn fullyrði að Íslendingar biðji um aukna hernaðaraðstoð en Íslendingar segi að frumkvæðið komi frá Bandaríkjamönnum.



Varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna kom hingað til lands í vikunni en haft er eftir honum á vefsíðunni Defensenews að Íslendingar hafi áhyggjur vegna vaxandi umsvifa Rússa og hafi áhuga á aukinni varnarsamvinnu. Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sagði í samtali við Stöð 2 í gær að ekki væri verið að biðja bandaríska herinn að snúa aftur. Málið snerist um um aukið loftrýmiseftirlit en gert er ráð fyrir því í fjárlagafrumvarpinu. Þar eru útgjöld til varnarmála aukin um 200 milljónir.

Vilja nýta aðstöðuna í Keflavík

Birgir Ármannsson, formaður utanríkismálanefndar, segir að það sé aukinn áhugi af beggja hálfu að nýta betur aðstöðuna á Keflavíkurflugvelli.

„Eins og við höfum orðið vör við á norður-Atlantshafi og víðar í Evrópu er öryggisástandið að breytast. Það er ljóst að af hálfu Rússa hefur verið aukin uppbygging herafla og herstöðva á norðurslóðum og um alla norðanverða Evrópu verða menn í auknum mæli varir við ferðir rússneskra flugvéla og kafbáta og það gerir það að verkum að við þurfum að skoða okkar stöðu í því samhengi,“ segir Birgir.

Árni Páll Árnason segir hinsvegar að ekkert sé á borðinu um hvaða hættumat liggi þarna að baki. Það eigi að fara að leggja þjóðaröryggistefnu Íslands fyrir þingið og það sé skrítið að heyra um einhverjar óskir til Bandaríkjanna um aukinn viðbúnað á sama tíma án þess að neinn í stjórnarandstöðunni hafi heyrt minnst á það fyrr.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×