Valskonur slátruðu Fjölni | Úrslit kvöldsins Kristinn Páll Teitsson skrifar 28. september 2015 22:15 Hallveig Jónsdóttir var atkvæðamest í Valsliðinu í kvöld. Vísir/Vilhelm
Valskonur einfaldlega slátruðu Fjölni í Fyrirtækjabikar kvenna í körfuknattleik í kvöld en leiknum lauk með 64 stiga sigri Vals. Valskonur gerðu einfaldlega út um leikinn í fyrstu tveimur leikhlutunum en í hálfleik var staðan 50-16 fyrir Val. Bættu þær við forskotið í næstu tveimur leikhlutum og lauk leiknum með afar sannfærandi sigri. Hallveig Jónsdóttir var atkvæðamest í Valsliðinu með 22 stig en Dagbjört Dögg Karlsdóttir og Bergþóra Holton Tómasdóttir bættu við átján stigum hvor. Í liði Fjölnis var það Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir sem var atkvæðamest með ellefu stig ásamt því að taka niður tíu fráköst. Það var heldur meiri spenna í leik Grindavíkur og Snæfells en þriðji leikhluti Grindavíkurliðsins skóp sigurinn. Snæfell leiddi í hálfleik 32-25 en í þriðja leikhluta náðu Grindvíkingar tökum á leiknum og leiddu 50-47 að þriðja leikhluta loknum. Snæfellskonum tókst að saxa á forskot Grindvíkinga í fjórða leikhluta en tókst ekki að stela sigrinum og lauk leiknum með tveggja stiga sigri Grindavíkur, 67-65.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum vill fara norsku leiðina Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Sjá meira