Balotelli skoraði í fyrsta byrjunarliðsleiknum með AC Milan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2015 20:44 Mario Balotelli í leiknum í kvöld. Vísir/Getty
Vandræðabarnið Mario Balotelli skoraði eitt marka AC Milan í 3-2 sigri á Udinese í ítölsku A-deildinni í fótbolta í kvöld. AC Milan átti algjöran drauma fyrri hálfleik þar sem liðið komst í 3-0 en Milan-menn máttu þakka fyrir að missa þetta ekki niður í jafntefli í lok leiksins. Udinese skoraði tvö mörk í seinni hálfleiknum og fékk vissulega færi til að jafna metin undir lok leiksins. Mario Balotelli kom AC Milan í 1-0 strax á 5. mínútu með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu en þetta var hans fyrsti leikur í byrjunarliðinu síðan að hann kom frá Liverpool. AC Milan bætti við tveimur mörkum í fyrri hálfleiknum, Giacomo Bonaventura skoraði það fyrra á 10. mínútu eftir stungusendingu frá Riccardo Montolivo en það síðara skoraði Cristián Zapata með skalla eftir sendingu Giacomo Bonaventura. Emmanuel Agyemang-Badu minnkaði muninn í 3-1 á 51. mínútu og Duvan Zapata skoraði annað mark aðeins sjö mínútum síðar. Leikmenn AC Milan héldu út síðasta hálftíma leiksins og fögnuðu góðum útisigri. AC Milan komst upp í 4. sæti deildarinnar með þessum sigri en Udinese er í 17. sæti deildarinnar.Leikmenn AC Milan fagna hér marki Mario Balotelli.Vísir/Getty
Ítalski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Sjá meira