Jólageitin fór einmitt upp í gær en óhætt er að segja að um frægustu geit landsins sé að ræða, og mögulega þá umdeildustu. Um sjö ára hefð er að ræða í Garðabænum. Af einhverjum sökum hafa óprúttnir aðilar gert tilraunir til að kveikja í henni undanfarin ár. Sumum hefur tekist ætlunarverk sitt en öðrum ekki.

„Það var aðallega í byrjun. Þá fengum við tvö eða þrjú ár þar sem menn reyndu mjög stíft að kveikja í geitinni með eldsprengjum og bensíni. Þetta hefur verið heldur rólegra seinni ár,“ segir Þórarinn.
Þó hafi verið gerðar nokkrar tilraunir í fyrra en án árangurs. Ástæðan er mögulega öryggisgæslan en þar slær sænski húsgagnaframleiðandinn hvergi af.
„Við erum með sólarhringsgæslu á geitinni,“ segir Þórarinn. Bæði eru myndavélar sem snúa að geitinni auk þess sem rafmagnsgirðing er umhverfis hana.
„Maður gerir það sem þarf, eða það sem maður heldur að dugi,“ segir framkvæmdastjórinn.
„Menn þurfa að vera mjög útsjónasamir ef þeir ætla að ná að brenna geitina.“

Þórarinn telur geitina einnig hafa fengið meiri frið seinni ár eftir að jólaseríum var bætt á hana. Framleiðslukostnaður við seríurnar einn og sér sé um ein milljón króna.
„Fólk er ragara þegar það sér hvað þetta eru mikil verðmæti. Nú sér fólk að það er hellings peningur í þessu. Ég held að skynsemin beri menn ofurliði.“
Hefðin er komin frá Svíþjóð og Þórarinn kann svo sannarlega að meta geitina.
„Mér finnst hún voðalega flott, sérstaklega þegar er komið myrkur og farið að snjóa aðeins á hana. Hún er ótrúlega skemmtilegt skraut. Hún er orðin tákn Kauptúnsins þótt hún standi á lóð IKEA,“ segir Þórarinn. Hann óttast ekkert skemmdarverk.
„Við höfum þá hefð að í hvert skipti sem geitin er brennd þá gerum við stærri geit næst. Hún byrjaði í fjórum metrum og er sex metrar núna og hefur fengið að vera það meira og minna óskemmd síðan.“