Titill númer fimmtán í augsýn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. október 2015 06:00 Fulltrúar liðanna tólf sem spila í Dominos-deild karla í vetur. vísir/Stefán
ÍR-ingar hafa í meira en hálfa öld getað kallað sig sigursælasta körfuboltalið landsins en nú eru blikur á lofti. Lengi leit út fyrir að Njarðvíkingar væru líklegastir til að ná Breiðhyltingum en Njarðvíkingar hafa ekki unnið stóra titilinn í að verða áratug og þess í stað eru það KR-ingar sem stefna nú hraðbyri á toppinn. KR vann Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð síðasta vor og um leið í fimmta skiptið á síðustu níu árum. Þá svart-hvítu vantar því aðeins einn titil til að ná ÍR.Unnu fimmtánda titilinn árið 1977 ÍR-ingar unnu fimmtánda titil sinn vorið 1977 og voru þá tíu titlum á undan erkifjendum sínum úr Vesturbænum. Njarðvíkingar unnu sinn tólfta Íslandsmeistaratitil á rúmum tveimur áratugum árið 2002 en hafa síðan aðeins bætt einum við og hann kom í hús fyrir níu árum. Gullöld KR hefur tekið við og enginn endir á henni í augsýn. Metin eru við sjóndeildarhringinn. KR-ingar, Íslandsmeistarar síðustu tveggja ára, eru ekki aðeins með lið fullt af landsliðsmönnum og besta Kana deildarinnar síðustu ár (Michael Craion) því þeir gerðu gott enn betra og fengu til sín einn besta leikstjórnanda landsins (Ægi Þór Steinarsson). KR-liðið hefur unnið 21 og 20 leiki síðustu tvö ár en með þennan mannskap er engin ástæða til annars en að stefna á 22 sigra (í 22 leikjum) á þessu tímabili. Hafi verið pressa á FH-ingum í fótboltanum síðasta sumar þá verður hún alls ekki minni á körfuboltaliði KR í vetur. Liðið var aðeins sex stigum frá fullu húsi í spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna og ekki að ástæðulausu. Allt annað en fimmtándi titillinn í húsi væru mikil vonbrigði í Vesturbænum og stórfrétt fyrir alla aðra. Tindastóll kom mjög mörgum á óvart með því að ná öðru sætinu á síðasta tímabili en það er ekki hægt að koma á óvart ár eftir ár og nú eru miklu meiri væntingar gerðar til Stólanna. Gömlu mennirnir eru vissulega einu ári eldri en hinir ungu og efnilegu leikmenn liðsins hafa líka bætt við einu ári í reynslubankann. Finninn Pieti Poikola hefur náð frábærum árangri með lið sín en það á eftir að koma í ljós hvort hann nær að byggja ofan á frábært starf Israels Martin eða reynir að breyta of miklu.Skref í rétta átt á hverju ári Haukarnir hafa stigið eitt skref í rétta átt á hverju tímabili undir stjórn Ívars Ásgrímssonar undanfarin ár og eru líklegir til að reyna við eitt skref til viðbótar í vetur. Liðið, sem er nær eingöngu byggt upp á heimastrákum, fór upp 2013, komst í átta liða úrslitin 2014 og fór í undanúrslitin 2015. Haukar eru eitt af liðunum sem verða í baráttunni um annað sætið í vetur. Stjarnan vann Lengjubikarinn og mætir með spennandi lið til leiks. Justin Shouse er enn á eftir hinum langþráða Íslandsmeistaratitli og mætir hungraður til leiks í flottu formi. Garðbæingar verða með í toppbaráttunni. Fyrir fram er búist við að fjögur efstu liðin skeri sig úr en það má alltaf búast við spútnikliði og eitt þeirra gæti komið úr næsta pakka. Þar eru lið eins og Þór Þorlákshöfn, Grindavík, Njarðvík, FSu og Keflavík.Ekkert Suðurnesjalið á topp fimm Suðurnesin hafa verið höfuðvígi körfuboltans síðustu áratugina en útlitið er ekkert sérstaklega bjart ef marka má árlega spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna. Þar skipa Suðurnesjaliðin þrjú sér í sæti sex, sjö og átta. Það væri sögulegt enda hefur alltaf að minnsta kosti eitt lið frá Suðurnesjum verið með heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Þetta er líka í fyrsta sinn í sögu þessarar spár þar sem lið frá Suðurnesjum endar ekki í einu af þremur efstu sætunum. Það var vitað að bæði Keflavík og Grindavík yrðu í leikmannavandræðum en það var aftur á móti búist við miklu af Njarðvík eftir að liðið samdi aftur við Stefan Bonneau. Hásinarslit Bonneau hafa hins vegar breytt öllu í Ljónagryfjunni og takmarkanir leikmannahópsins urðu um leið enn meira áberandi. Það er samt alltaf hættulegt að vanmeta liðin þrjú sem hafa saman unnið 23 af síðustu 32 Íslandsmeistaratitlum. Endurnýjunin hefur ekki verið í sama gæðaflokki og áratugina á undan en „pressuleysið“ gæti gert mörgum leikmönnum liðanna gott. Það er líka enginn í Keflavík, Njarðvík og Grindavík að fara að sætta sig við sjötta sætið, hvað þá það sjöunda eða áttunda.Spútnikliðið frá Suðurlandi? Suðurlandið á tvo fulltrúa í deildinni í ár og bæði liðin fóru alla leið í undanúrslit Lengjubikarsins. Nýliðar FSu burstuðu bæði Njarðvík og Keflavík á leið sinni þangað og Þórsarar eru búnir að endurheimta Nat-vélina (Ragnar Nathanaelsson) sem breytir miklu fyrir liðið. Nýliðar Hattar verða að berjast fyrir lífi sínu í deildinni en ÍR og Snæfell, sem misstu bæði af úrslitakeppninni í fyrra, hafa þurft að horfa á eftir lykilmönnum síðustu árin og það bættist í þann hóp í sumar. Óvissan í kringum leikmannahóp þeirra og lítil reynsla gætu orðið báðum liðum að falli í vetur. ooj@frettabladid.is
Dominos-deild karla Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira