Innlent

Óttarr svarar Halldóri

Sæunn Gísladóttir skrifar
Óttarr Guðlaugsson, fráfarandi formaður Varðar.
Óttarr Guðlaugsson, fráfarandi formaður Varðar.
Óttarr Guðlaugsson, fráfarandi formaður Varðar, segir það mikla einföldun hjá Halldóri Halldórssyni, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga, að tala um þá stöðu sem ríkir innan borgastjórnarhópsins að hann eigi ekki að sitja beggja megin við borðið sem skoðun eins manns, hann viti betur enda sé þetta altalað bæði utan flokksins sem innan.

Fréttablaðið greindi frá því í morgun að Óttarr Guðlaugsson, fráfarandi formaður Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, gagnrýnir að Halldór Halldórsson, oddviti flokksins í borginni, sitji beggja vegna borðs þar sem hann sé á sama tíma oddviti og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Í svari við því sagðist Halldór hins vegar ekki skilja gagnrýni Óttarrs og sagði þá: „Þetta er bara í mínum huga tóm vitleysa, vegna þess að til að geta verið formaður sambandsins þá verður maður að vera sveitarstjórnarmaður,“ segir Halldór.

Óttarr segir að það að sitja í stjórn OR, Faxaflóahafna eða öðrum stjórnum/nefndum á vegum borgarinnar sé starf borgarfulltrúa og ekkert við slíkt að athuga svo framarlega sem borgarfulltrúar sinni sínum störfum. Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga sé embætti sem kosið er í á árlegu landsþingi sambandsins. Þar hafa sveitarfélög atkvæðavægi í samræmi við íbúafjölda og því alveg ljóst að stuðningur fulltrúa frá Reykjavík vegi þar þungt.

Oddviti borgarstjórnarhóps í minnihluta gegnir því mikilvæga hlutverki að sýna meirihlutanum aðhald, því hlutverki hans er augljóslega teflt í hættu þegar viðkomandi neyðist til að líta á fulltrúa meirihlutans sem kjósendur, eða jafnvel yfirmenn, sem hann má alls ekki styggja um of vilji hann halda starfi sínu," segir Óttarr.

Hann segir að það að líkja því saman að vera formaður flokksins eða oddviti hans í borgarstjórnarhóp sé í besta falli ofmat sama hvernig á það sé litið. Það að vera formaður sambands íslenskra sveitafélaga krefst ekki að vera oddviti í borgar- eða bæjarstjórnum landsins enda hefur a.m.k. einn varabæjarfulltrúi gegnt þessu starfi!" segir Óttarr.


Tengdar fréttir

Halldór sitji ekki beggja vegna borðsins

Fráfarandi formaður Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, gagnrýnir að Halldór Halldórsson, oddviti flokksins í borginni, sitji beggja vegna borðs þar sem hann sé á sama tíma oddviti og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þetta kom fram á aðalfundi Varðar á þriðjudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×