Innlent

Vill lækka refsirammann fyrir fíkniefnabrot

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Björgvin G. Sigurðsson
Björgvin G. Sigurðsson vísir/anton
Björgvin G. Sigurðsson, varaþingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt til breytingu á almennum hegningarlögum þess efnis að refsiramminn fyrir fíkniefnabrot og peningaþvætti verði lækkaður úr tólf árum í tíu.

Fjórir aðrir þingmenn úr þremur flokkum flytja frumvarpið með Björgvini. Það eru Brynjar Níelsson, Helgi Hrafn Gunnarsson, Heiða Kristín Helgadóttir og Róbert Marshall.

Í greinargerðinni segir að neysla löglegra og ólöglegra fíkniefna hafi aukist jafnt og þétt um áratugaskeið þrátt fyrir hert viðurlög og þyngri dóma í þessum málum. Refsiramminn fyrir brot af þessu tagi var hækkaður í tólf ár úr tíu árið 2001.

„Öflug meðferðarúrræði hafa sýnt sig vera vænlegri leið til að vinna gegn eymd og ömurlegum ástæðum fíkniefnaneytenda, ekki síður en þvinguð meðferð sem hluti af dómaúrræði. Það er mat flutningsmanna að refsistefnan í fíkniefnamálum hafi gengið of langt, refsiramminn nýttur í óhófi og allt of langt sé gengið í refsingum án þess að merkjanlegur árangur náist nema síður sé,” segir orðrétt í greinargerðinni. Öflugar forvarnir, hóflegir refsidómar og fyrirtaksmeðferðarúrræði eigi að koma í stað refsistefnu og nauðsynlegt sé að taka núverandi fíkniefnastefnu til endurskoðunar.

Björgvin hefur einng lagt fram fyrirspurn til innanríkisráðherra um hve margir hafa afplánað fangelsisrefsingar fyrir fíkniefnabrot hér á landi frá 1980 og hve hátt hlutfall þeir hafa verið af dómþolum á tímabilinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×