Innlent

Leggja til að fæðingarorlof verði lengt og hámarksgreiðslur hækki

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Verði frumvarpið að lögum munu foreldrar geta varið fyrsta árinu í fæðingarorlofi með barni sínu.
Verði frumvarpið að lögum munu foreldrar geta varið fyrsta árinu í fæðingarorlofi með barni sínu. vísir/getty
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt til breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof þess efnis að fæðingarorlofið verði lengt og hámarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði verið hækkaðar. Að auki er þingflokkur Samfylkingarinnar meðflutningsmenn.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttirvísir/ernir
Verði frumvarpið að veruleika mun hvort foreldri um sig fá fimm mánaða fæðingarorlof og að auki verður hægt að deila tveimur mánuðum á milli sín. Því verður fæðingarorlofið alls heilt ár. Með núverandi fyrirkomulagi fá báðir foreldrar þrjá mánuði og geta deilt þremur á milli sín.

Þá er lagt til að hámarksgreiðslur í orlofi hækki úr 370.000 krónum í 500.000 krónur. Gert er ráð fyrir að lögin taki gildi að fullu um áramótin 2018 en að á árinu 2017 verði stigið milliskref á þann veg að hvort foreldri fái fjóra mánuði í orlof og tveimur sé skipt á milli þeirra.

„Markmið þess að leggja til hækkun á hámarksfjárhæð er að virða rétt barna til samveru við báða foreldra og að jafna stöðu foreldra til þátttöku á vinnumarkaði og umönnunar barna. Afleiðingar lækkunar hámarksfjárhæðarinnar hafa verið þær að sífellt færri feður taka fæðingarorlof þar sem tekjur þeirra eru að jafnaði hærri en tekjur mæðra. Mæður eiga af eðlilegum ástæðum erfiðara með að stytta fæðingarorlofstímabil sitt þó margar þeirra lækki núorðið mikið í launum þá mánuði sem þær eru í fæðingarorlofi,” segir í greinargerð með frumvarpinu.

Ekki er kveðið á um hækkun lágmarksgreiðslna eða fæðingarstyrkja sem nýtast þeim sem eru í lágu starfshlutfalli, í námi eða utan vinnumarkaðar. Þær greiðslur hækki án aðkomu Alþingis.


Tengdar fréttir

Hámarks orlofsgreiðsla helmingi lægri en 2008

Mjög var skorið niður hjá fæðingarorlofssjóði eftir hrun. Hámarksupphæð greiðslna hefur lítið hækkað síðan þá. Engin áform um að hækka hámark 2016. Formaður velferðarnefndar telur að feðrum sem taki orlof muni fækka áfram.

Mikilvægara að hækka þak en lengja fæðingarorlofið

Starfshópur sem rannsakað hefur framtíðarskipan fæðingarorlofskerfisins skilar af sér skýrslu á næstunni og formaður hópsins segir mikilvægara að hækka greiðsluþak en að lengja orlofstímann. Hann segir málið brýnt og vonar að tillögur til breytinga verði lagðar fram strax á þessu þingi.

Segja ógerlegt að lifa á fæðingarorlofi

Tvær nýbakaðar mæður segja nær ógerlegt að lifa á tekjum frá fæðingarorlofssjóði og þarf önnur þeirra að búa í foreldrahúsum vegna tekjuskerðingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×