Innlent

Norræn yfirlýsing á loftslagsráðstefnu

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar, fara bæði á loftslagsráðstefnu Sameinu þjóðanna.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar, fara bæði á loftslagsráðstefnu Sameinu þjóðanna. vísir/vilhelm
Sex borgarfulltrúar í Reykjavík sækja loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París í desember. Sömuleiðis munu fulltrúar umhverfisnefndar Alþingis fara utan auk embættismanna á þessu sviði.

Á ráðstefnunni má búast við að borgarstjórar norræna höfuðborga leggi fram sameiginlega yfirlýsingu í loftslagsmálum. Um það var fjallað á fundi fulltrúa höfuðborga landanna í Reykjavík í júní og er reiknað með að frá þessu verði gengið í Danmörku í næstu viku.

„Vonast ég til þess að borgarstjórar höfuðborga Norðurlandanna skrifi undir yfirlýsingu um að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda umfram það sem ríkisstjórnir landanna hafa skuldbundið sig til,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í pistli í gær.

„Á þessari loftslagsráðstefnu koma saman fjörutíu þúsund manns frá öllum heiminum til þess að reyna að samræma vinnubrögð og viðbrögð við stærsta viðfangsefni samtímans; að bregðast við loftslagsbreytingum af mannavöldum,“ segir Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar, sem verður meðal ráðstefnugesta.

„Borgir gegna lykilhlutverki í að draga úr mengun og í losun gróðurhúsaloftegunda. Reykjavíkurborg hefur mjög metnaðarfull plön í þessum efnum og önnur sveitarfélög hafa það líka,“ segir Sóley. Aðspurð hvort nauðsynlegt sé að senda sex borgarfulltrúa úr Reykjavík á ráðstefnuna í París bendir hún á að um sé að ræða mjög stóran vettvang fyrir sveitarstjórnir.

„Borgir hafa verið að pressa mjög á sínar ríkisstjórnir um að taka þarna afdrifaríkar ákvarðanir og metnaðarfullar í þágu okkar allra og okkur finnst mjög mikilvægt að við fylgjum því eftir með þessum hætti,“ segir Sóley.

Kjörnir fulltrúar sem fara á ráðstefnuna auk Sóleyjar og Dags eru aðrir oddvitar framboða í borgarstjórn; Halldór Halldórsson, S. Björn Blöndal, Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir og Halldór Auðar Svansson. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×