Körfubolti

Keflavík hafði betur í nágrannaslagnum

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Hrund setti eitt stig í dag.
Hrund setti eitt stig í dag. Vísir/Anton
Keflavík vann átta stiga sigur á Grindavík, 72-64 í leik liðanna í dag í Dominos-deild kvenna en þetta var aðeins annar sigur liðsins á tímabilinu eftir þrjá tapleiki í röð.

Keflavíkurkonur komu ákveðnari til leiks og leiddu að loknum fyrsta leikhluta 20-13 en gestirnir úr Grindavík svöruðu með góðum öðrum leikhluta og leiddu í hálfleik 36-35.

Keflavík náði forskotinu aftur í þriðja leikhluta en staðan var 59-52 að þremur leikhlutum loknum. Grindavík gerði ágætis áhlaup í fjórða leikhluta en Keflavíkurliðinu tókst að standast áhlaupið og tryggja sér fyrsta sigurinn í síðustu fjórum leikjum.

Melissa Zorning var atkvæðamest í liði Keflavíkur með 31 stig en Sandra Lind Þrastardóttir bauð upp á tvöfalda tvennu með tíu stig og fimmtán fráköst.

Í liði Grindavíkur var Whitney Michelle Frazier hársbreidd frá tvöfaldri tvennu með 19 stig og 9 fráköst en hún var stigahæst í liði Grindavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×