Innlent

Vill endurskoða regluverk um neyðarmóttöku

Snærós Sindradóttir skrifar
Jóhanna segir þetta allt of stuttan tíma að sönnunargögnum vegna nauðgana sé eytt eftir níu vikur.
Jóhanna segir þetta allt of stuttan tíma að sönnunargögnum vegna nauðgana sé eytt eftir níu vikur. vísir/gva
„Að sjálfsögðu á ekki að eyða sönnunargögnum á meðan fyrningarfrestur hefur ekki gengið í gildi,“ sagði Jóhanna María Sigmundsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, í umræðum um störf þingsins á Alþingi í gær.

Jóhanna var þar með að tjá sig um frétt Fréttablaðsins frá því á þriðjudag þar sem segir að sönnunargögnum, svo sem lífsýnum og nærfötum, sem tekin eru á neyðarmóttöku vegna nauðgana sé eytt eftir níu vikur.

Jóhanna segir þetta allt of stuttan tíma. Hún segir að endurskoða þurfi regluverk um vörslu sönnunargagna hjá neyðarmóttökunni.

„Þetta verkferli á ekki að vera til þess að þrýsta á þolendur kynferðisafbrota til að kæra. Þeir eiga að fá að taka ákvörðunina sjálfir og það er okkar að hafa til það lagaumhverfi og þá aðstöðu sem fólk þarf á að halda.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×