Öll gögn Albananna eru komin í hendur Alþingis Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar 18. desember 2015 06:00 Arjan mun eins og Kevi landi hans þurfa undanþágu frá reglum um sjúkratryggingar til að fá viðeigandi læknishjálp komi hann til Íslands. Mynd/Stöð2
Pepaj-fjölskyldan er stödd úti í Skode í Albaníu og er afskaplega fegin stuðningi sem hún hefur fengið frá íslensku samfélagi. Til að komast til Íslands aftur hefur hún þurft að afla gagna, svo sem sakavottorða, hjúskaparvottorðs og fæðingarvottorða. Hermann Ragnarsson, sem hefur lagt fjölskyldunni lið, segir albanskan þingmann greiða götu þeirra svo þau komist sem fyrst með Kevi til Íslands. „Albanskur þingmaður aðstoðar Pepaj-fjölskylduna við að afla gagnanna eins fljótt og kostur er til að þau komist sem fyrst til landsins. Nú eru öll gögn komin til allsherjarnefndar til vinnslu,“ segir Hermann og staðfestir með því að umsókn fyrir fjölskylduna hafi verið lögð fram. Einnig hefur verið lögð umsókn fyrir Phellumb-fjölskylduna og drenginn Arjan sem glímir við hjartveiki. Allt kapp er lagt á að fara yfir umsóknir um ríkisborgararétt áður en kemur að jólafríi.vísir/vilhelm Umsóknir um ríkisborgararétt sem allsherjarnefnd Alþingis fjallar nú um eru 62 en þær varða fleiri einstaklinga þar sem ð hver umsókn getur varðað einstakling og börn hans. Í framhaldinu gerir allsherjarnefnd tillögu að frumvarpi til laga um veitingu ríkisborgararéttar. Tíminn er að verða naumur en talið er áríðandi að frumvarpið verði afgreitt fyrir jólafrí Alþingis. Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður allsherjarnefndar, segist gera ráð fyrir því að frumvarpið verði lagt fram fljótlega. Þótt báðar albönsku fjölskyldurnar gætu fengið ríkisborgararétt fyrir jól þarf að greiða úr ýmsum flækjum varðandi komu þeirra til landsins. Mikilvægt er að drengirnir tveir, Kevi og Arjan, fái heilbrigðisþjónustu. Nýir ríkisborgarar eru hins vegar undanskildir sjúkratryggingum fyrstu sex mánuðina eftir komu, eða endurkomu til Íslands. Sjúkratryggingastofnun er heimilt að ákveða samkvæmt umsókn að einstaklingur sem sjúkratryggður er samkvæmt lögunum sé áfram sjúkratryggður hafi hann dvalið erlendis í námi eða atvinnu en ströng skilyrði eru sett um búsetu á Íslandi áður. Því er ljóst að eins konar undanþágu þarf frá reglum um sjúkratryggingar.
Alþingi Flóttamenn Reiði vegna brottvísunar albanskra fjölskyldna Tengdar fréttir Vonar að albönsku fjölskyldurnar komi aftur fyrir áramót Albönsku fjölskyldurnar tvær sem sendar voru úr landi síðasta fimmtudag hafa sótt um íslenskan ríkisborgararétt, í stað þess að sækja um hæli. Vinur fjölskyldnanna vonar að málið verði afgreitt hratt og að þær komi aftur hingað til lands fyrir áramótin. 14. desember 2015 19:00 Vilja koma Kevi heim Ekkert er því til fyrirstöðu að albanska fjölskyldan sem vísað var úr landi á fimmtudag sæki aftur um hæli hér á landi, að mati lögmanns. Unnið er að fjármögnun og skipulagningu þess að koma fjölskyldunni aftur til Íslands. 14. desember 2015 06:00 Aðstæður í Albaníu óboðlegar börnum Brottvísun tveggja albanskra fjölskyldna hefur vakið mikla reiði í samfélaginu síðastliðinn sólarhring. Sérstaklega vegna veikinda tveggja ungra drengja. Í annað sinn á hálfu ári er flugvél leigð undir hóp albanskra hælisleitenda til að senda þá úr landi. 11. desember 2015 14:00 Sýndu samstöðu á Austurvelli: Megum ekki bregðast veikum börnum sem hingað koma Albönsku fjölskyldunum tveimur sem vísað var úr landi í síðustu viku var sýndur stuðningur á Austurvelli í kvöld. 15. desember 2015 18:04 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Vonar að albönsku fjölskyldurnar komi aftur fyrir áramót Albönsku fjölskyldurnar tvær sem sendar voru úr landi síðasta fimmtudag hafa sótt um íslenskan ríkisborgararétt, í stað þess að sækja um hæli. Vinur fjölskyldnanna vonar að málið verði afgreitt hratt og að þær komi aftur hingað til lands fyrir áramótin. 14. desember 2015 19:00
Vilja koma Kevi heim Ekkert er því til fyrirstöðu að albanska fjölskyldan sem vísað var úr landi á fimmtudag sæki aftur um hæli hér á landi, að mati lögmanns. Unnið er að fjármögnun og skipulagningu þess að koma fjölskyldunni aftur til Íslands. 14. desember 2015 06:00
Aðstæður í Albaníu óboðlegar börnum Brottvísun tveggja albanskra fjölskyldna hefur vakið mikla reiði í samfélaginu síðastliðinn sólarhring. Sérstaklega vegna veikinda tveggja ungra drengja. Í annað sinn á hálfu ári er flugvél leigð undir hóp albanskra hælisleitenda til að senda þá úr landi. 11. desember 2015 14:00
Sýndu samstöðu á Austurvelli: Megum ekki bregðast veikum börnum sem hingað koma Albönsku fjölskyldunum tveimur sem vísað var úr landi í síðustu viku var sýndur stuðningur á Austurvelli í kvöld. 15. desember 2015 18:04