Körfubolti

Palmer í stuði þegar Snæfell fór á toppinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Haiden Denise Palmer er í stóru hlutverki hjá Snæfelli.
Haiden Denise Palmer er í stóru hlutverki hjá Snæfelli. Vísir/Stefán
Snæfell tyllti sér á toppinn í Domino's deild kvenna í körfubolta með 16 stiga sigri, 78-62, á Grindavík í Hólminum í kvöld.

Haiden Palmer var atkvæðamest í liði Snæfells en hún skoraði 33 stig, tók sex fráköst, gaf sex stoðsendingar og stal boltanum í þrígang. Bryndís Guðmundsdóttir kom næst með 18 stig og átta fráköst.

Það var fátt um fína drætti í sóknarleik Grindvíkinga en liðið var aðeins með 29% skotnýtingu í leiknum.

Whitney Frazier var stigahæst hjá þeim gulu með 16 stig en hún tók einnig 13 fráköst. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir var með 14 stig og 14 fráköst en hún hitti aðeins úr fjórum af 18 skotum sínum í leiknum.

Aðeins einu stigi munaði á liðunum eftir 1. leikhluta, 16-15, í 2. leikhluta höfðu Íslandsmeistararnir yfirhöndina og þeir leiddu með átta stigum, 38-30, í hálfleik.

Grindavík byrjaði seinni hálfleikinn betur og náði að jafna metin í 42-42. En þá kom frábær kafli hjá Snæfelli sem skoraði 10 stig í röð og kom sér í góða stöðu fyrir lokaleikhlutann.

Sigurinn var aldrei í hættu í 4. leikhluta og Snæfellingar fögnuðu góðum sigri sem var sá níundi í 11 leikjum liðsins á tímabilinu.

Grindavík er með 12 stig í 3. sæti deildarinnar.

Tölfræði leiks:

Snæfell-Grindavík 78-62 (16-15, 22-15, 16-13, 24-19)


Snæfell: Haiden Denise Palmer 33/6 fráköst/6 stoðsendingar, Bryndís Guðmundsdóttir 18/8 fráköst, Sara Diljá Sigurðardóttir 9/5 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir 6, María Björnsdóttir 4/9 fráköst, Rebekka Rán Karlsdóttir 2, Alda Leif Jónsdóttir 2, Anna Soffía Lárusdóttir 2, Andrea Björt Ólafsdóttir 2/6 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 0, Hrafnhildur Magnúsdóttir 0, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 0.

Grindavík: Whitney Michelle Frazier 16/13 fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 14/14 fráköst, Ingunn Embla Kristínardóttir 9, Jeanne Lois Figeroa Sicat 6, Lilja Ósk Sigmarsdóttir 5/5 fráköst, Helga Einarsdóttir 4, Hrund Skuladóttir 4, Petrúnella Skúladóttir 4, Viktoría Líf Steinþórsdóttir 0, Ólöf Rún Óladóttir 0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×