Blikar eiga von á nýju tilboði í Höskuld Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. desember 2015 13:45 Höskuldur Gunnlaugsson. Vísir
Breiðablik og Hammarby eiga enn í viðræðum um kantmanninn Höskuld Gunnlaugsson sem sló í gegn í Pepsi-deild karla síðastliðið sumar. Höskuldur er 21 árs gamall og var til reynslu hjá sænska liðinu Hammarby í haust. Síðan þá hafa tilboð gengið á milli félaganna og eru viðræður enn í gangi. „Það er verið að vinna þetta í rólegheitum og félögin eru enn að ræða þetta,“ sagði Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri Breiðabliks, við Vísi í dag. „Það ber svo sem ekki mikið á milli í viðræðunum, þó svo að það getur enn brugðið til beggja vona. Við eigum von á því að fá eitthvað meira frá þeim í þessari viku.“ Arnór Smárason gekk til liðs við Hammarby fyrir skömmu en Eysteinn Pétur sagðist hafa fengið þau skilaboð frá sænska félaginu að það hefði engin áhrif á áhuga liðsins á Höskuldi. Annar leikmaður Breiðabliks, Oliver Sigurjónsson, var á reynslu hjá Armenia Bielefeld í Þýskalandi fyrr í haust en þýska félagið hefur ekki enn sett sig í samband við Blika að sögn Eysteins Péturs. Breiðablik hefur misst bæði Kristin Jónsson og Guðjón Pétur Lýðsson í haust en sömdu aftur við Jonathan Glenn auk þess sem að Guðmundur Atli Steinþórsson kom frá HK. Þá er ljóst að leikmenn sem voru í láni hjá öðrum félögum í fyrra, líkt og Gunnlaugur Hlynur Birgisson (Víkingi Ólafsvík) og Alfons Sampsted (Þór Akureyri), fái hlutverki í liði Blika í sumar. Engu að síður eru Blikar að horfa til þess að styrkja sig enn frekar fyrir næsta keppnistímabil. „Það er ekkert leyndarmál að við höfum áhuga á Ævari Inga [Jóhannessyni, leikmanni KA] svo dæmi sé tekið. Við eurm að leita að einum til þremur leikmönnum til viðbót,“ segir Eysteinn.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti Mætti ekki í viðtöl eftir tap Sport Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Liverpool með flottan sigur í Frakklandi Fótbolti Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti Fleiri fréttir Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Júlíus Mar seldur til Kristiansund Bæði Blikaliðin fá sánuklefa fyrir komandi tímabil Feginn að vera fluttur heim úr fátækrahverfinu í Kína Sjá meira