Mæðir á margra barna mæðrum Guðrún Ansnes skrifar 3. mars 2015 11:30 Sigrún Ósk með stórri fjölskyldu á Eyrarbakka. Þau hjónin leyfðu móður náttúru að hafa sinn gang og sitja nú sæl með sinn krakkaskara. mynd/tómas marshall „
Þar sem ég ströglaði við að komast í báða sokkana fyrir hádegi, greiða mér og fá mér að borða sitjandi fór ég sífellt oftar að hugsa um hvernig í ósköpunum konur færu að með fleiri og jafnvel miklu fleiri börn,“ segir Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, sem fer af stað með nýja þáttaröð, Margra barna mæður, á morgun. Sigrún segir hugmyndina að þáttunum hafa sprottið í kjölfar þess að hún eignaðist sitt annað barn. „Ég eignaðist tvö börn á frekar stuttum tíma, en seinna barnið lét hafa frekar mikið fyrir sér fyrsta árið.“ Smám saman fór Sigrún Ósk að átta sig á að hún væri með efnivið í höndunum og að eflaust væru fleiri að velta þessum spurningum fyrir sér. „Ég bara varð að komast að hvernig fleiri barna mæður gerðu þetta allt,“ bætir hún við. Úr varð að Sigrún Ósk lagðist í rannsóknarvinnu og leitaði á náðir kvenna sem eiga það sameiginlegt að eiga mörg börn, og fékk hún að fylgjast með þeim daglangt í leik og starfi.Þátturinn hefur göngu sína á Stöð 2 annað kvöld.Níu börn, átta þeirra undir fermingaraldri Þær konur sem Sigrún Ósk tók tali eiga á bilinu fimm til tíu börn. „Sem dæmi um fjölskyldu sem ég sæki heim er ellefu manna fjölskylda á Eyrarbakka. Þar eru níu börn, og átta þeirra eru á fermingaraldri og undir,“ segir Sigrún og bætir við að ákvörðun hafi verið tekin um að tjónka ekki við móður náttúru í þessum efnum. „Það merkilegasta við þá heimsókn var hve áreynslulaust þeim fór þetta viðamikla verk úr höndum,“ segir Sigrún Ósk gáttuð. Það kom Sigrúnu einmitt einna mest á óvart hve jarðbundnar og afslappaðar mæðurnar raunverulega eru, þvert á það sem hún hafði upphaflega gefið sér. „Í fyrsta þætti sem sýndur verður á morgun, mun ég heimsækja fjölskyldu sem ákvað að bæta við sig einu barni eftir að hafa eignast tvíbura. Í því kasti reyndust þríburar svo þar voru komin fimm börn á afar stuttu tímabili,“ segir Sigrún sem hefur fengið svör við spurningum sínum, þó þær mæður sem hún talaði við hafi sannarlega látið þetta líta út fyrir að vera lítið mál. „Ég á nokkrar nýjar fyrirmyndir í lífinu eftir gerð þessara þátta,“ segir Sigrún að lokum.
Margra barna mæður Mest lesið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Fleiri fréttir Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Sjá meira