Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. ágúst 2026 09:46 Dolly á sviði árið 2022. Getty Dolly Parton lést í vikunni en hún skildi eftir sig eitt lag sem mun koma út á hundrað ára afmælisdegi hennar. Hún vann að laginu fram að dánardeginum.
Dolly lést á þriðjudag eftir skammvinna baráttu við krabbamein. Hún var orðin áttatíu ára gömul. „Hún elskaði að sjá drauma sína verða að veruleika og unni því að vita að verk hennar glöddu fólk,“ sagði Dany Nozell, umboðsmaður Dollyar til lengri tíma. Hann tók einnig fram að Dolly hefði sjálf valið teymi til að skipuleggja útgáfu verka sinna eftir andlátið. Nozell leiðir sjálfur teymið og hyggst sjá til þess að draumar hennar verði að veruleika. „Ef þú sérð óútgefna tónlist, vörur, bækur, upplifanir og herferðir sem eru settar af stað í gegnum opinberar rásir Dolly Parton getið þið treyst því að hún sjálf hafi lagt blessun sína yfir það.“ Meðal þessara verkefna er Broadway-sýning um líf Dollyar en hún verður formlega frumsýnd í janúar 2027. Þá er einnig eftir eitt óútgefið lag sem ber heitið My Place in History. Lagið hefur verið læst í kastaníukassa í DollyWood en söngkonan samdi og tók það upp árið 2015. Með laginu fylgdu fyrirmæli um að það skyldi vera læst í kassanum og innsiglað þar til 19. janúar 2046, á hundrað ára afmælisdegi Dolly. Upptakan er geymd á geisladiski og á Dolly, samkvæmt ABCNews, að hafa sett geislaspilara með í kassann til að tryggja að fólk geti hlustað á lagið þegar að því kemur. „Það er ekki gott að segja hvernig tónlistin verður orðin þá,“ skrifaði Dolly í bók sinni árið 2020. „Vonandi spilast þetta og verður ekki rotnað allt saman.“ Auk þess að tryggja útgáfu verkefna sinna var Dolly einnig búin að gera ráðstafanir fyrir jarðarförina sjálfa. Hún óskaði eftir lítilli, lokaðri athöfn fyrir nánustu fjölskyldumeðlimi og sagði árið 2014 að hún myndi vilja að lagið If We Never Meet Again yrði sungið. Lagið var í uppáhaldi hjá föður hennar og var flutt í útför hans árið 2000. Hér má heyra lagið í flutningi Elvis Presley.
Tónlist Bandaríkin Andlát Dolly Parton Mest lesið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Lífið Stjörnurnar syngja inn haustið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Sjá meira