Framsóknarmenn telja verðtryggingu ekki afnumda á meðan Bjarni er fjármálaráðherra Aðalsteinn Kjartansson skrifar 9. febrúar 2016 10:15 Framsóknarmenn vilja afnema verðtrygginguna en það vill fjármálaráðherra og hans flokkur ekki. Vísir/Daníel
Þingmenn Framsóknarflokksins eru komin í startholurnar varðandi afnám verðtryggingar og eru ekki tilbúnir að bíða mikið lengur eftir því að Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, komi fram með frumvarp um afnám verðtryggingar eða takmarkanir á verðtryggingunni. Sumarið og næsti vetur til stefnu Ekki er búið að útbúa heilsteypta áætlun um hvernig þingmenn flokksins munu standa að málinu og halda þeir þingmenn sem fréttastofa hefur rætt við enn í vonina um að ráðherrann standi við það plan sem lagt var upp með í stjórnarmyndunarviðræðum á næstu mánuðum. Eitt og hálft ár er eftir af þessu kjörtímabili en nær útilokað þykir að tillögur um afnám verðtryggingar komi fram á þessu þingi. Þá er sumarið og næsti vetur eftir til að afgreiða málið. Líklega mun talsverð umræða eiga sér stað í þinginu þegar málið loks ratar þar inn.Ómöguleiki með Bjarna Frosti Sigurjónsson, þingmaður flokksins, sagði í viðtali við Stjórnmálavísi í síðustu viku að þingmenn flokksins væru orðnir langeygir eftir frumvarpi um málið frá ráðherra og tók Silja Dögg Gunnarsdóttir flokkssystir hans undir það í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni um helgina. „Við höfum mjög miklar áhyggjur og erum ekki að fara í kosningabaráttu án þess að vera búin að leggja eitthvað fram um verðtrygginguna. Það bara kemur ekki til greina,“ sagði Silja Dögg í Sprengisandi á sunnudag. Þegar fréttastofa hefur rætt við þingmenn flokksins „off record“, eða ekki undir nafni, er enn þyngra hljóð í þeim. Upplifun þeirra sem fréttastofa hefur rætt við er sú að ekkert muni þokast í afnámi verðtryggingarinnar á meðan að Bjarni er í fjármálaráðuneytinu. Stjórnarsáttmálinn ekki berorður Einn orðaði það sem svo að Sjálfstæðisflokkurinn hlyti að líta á það sem svo að hann hefði staðið við ákvæði stjórnarsáttmálans með því að styðja skipun sérfræðihóps forsætisráðherra sem fór yfir leiðir til afnáms verðtryggingarinnar árið 2013. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.Vísir/ErnirStjórnarsáttmálinn segir einfaldlega: „Æskilegt er að nýta það tækifæri sem gefst samhliða skuldaleiðréttingu til að breyta sem flestum verðtryggðum lánum í óverðtryggð.“ Ekki er talað um með berum orðum að afnema verðtrygginguna. Hins vegar átti að skipa áðurnefnda nefnd: „Sérfræðinefnd um afnám verðtryggingar af neytendalánum og endurskipulagningu húsnæðislánamarkaðarins verður skipuð á fyrstu dögum nýrrar ríkisstjórnar og mun skila af sér fyrir næstu áramót.“Stuðningur úr óvæntri áttÞeir framsóknarþingmenn sem fréttastofa ræddi við minntust allir á þingmannafrumvarp þeirra Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur og Helga Hjörvars, þingmanna Samfylkingar, sem með mjög einföldum hætti bannar verðtryggingu neytendalána, þar með talið fasteignaveðlána einstaklinga. Ólíklega kemst það frumvarp nokkur tímann á dagskrá þingsins og þannig til umræðu á meðal þingmanna. Stuðningurinn við hugmyndir Framsóknar um afnám verðtryggingar kom hins vegar úr óvæntri átt þar sem Samfylkingin hefur það ekki á sinni stefnu að afnema hana. Þetta hefur þó sýnt framsóknarmönnum að stuðningur er við hugmyndir þeirra um afnám hafta á þingi út fyrir flokkinn.
Stjórnmálavísir Mest lesið Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Viðskipti innlent Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Viðskipti erlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Fleiri fréttir Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Sjá meira