Gary Martin kom að öllum fjórum mörkum Víkings í fyrsta leiknum Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. febrúar 2016 20:14 Gary Martin í Víkingsbúningnum í Egilshöll í kvöld. vísir/stefán
Það tók Gary Martin ekki nema hálftíma að skora sitt fyrsta mark fyrir Víking, en hann lagði upp tvö, kom við sögu í öðru marki og skoraði einnig í 4-2 sigri Víkinga á Haukum í Lengjubikarnum í kvöld. Víkingsliðið réð lögum og lofum fyrsta klukkutímann og komst yfir á elleftu mínútu þegar Viktor Jónsson skoraði. Hann fylgdi eftir skoti Gary Martin í varnarmann Haukaliðsins. Eftir að koma að fyrsta markinu lagði Gary Martin upp annað mark Víkings, en hann átti þá fyrirgjöf á Davíð Örn Atlason sem kom knettinum í netið, 2-0, á 27. mínútu. Þremur mínútum síðar skoraði Gary svo sitt fyrsta mark fyrir Víking, en hann var keyptur til Fossvogsliðsins á mánudagskvöldið. Enski markahrókurinn stangaði hornspyrnu Ívars Arnar Jónssonar í netið á 30. mínútu. Gary og Viktor Jónsson spiluðu saman í framlínu Víkingsliðsins í kvöld og á 53. mínútu komst sá enski í gott færi en renndi boltanum á Viktor sem skoraði fjórða markið, 4-0. Haukar gerðu heiðarlega tilraun til endurkomu með tveimur mörkum á skömmum tíma. Sigurgeir Jónasson skoraði fallegt mark á 74. mínútu og Aron Jóhannsson minnkaði muninn í 4-2 á 75. mínútu. Nær komust Haukarnir ekki. Víkingar eru á toppi riðils þrjú í Lengjubikarnum með sex stig eftir sigra á 1. deildar liðum HK og Hauka, en Haukarnir eru með eitt stig eftir jafntefli við KR í fyrsta leik.Markaskorarar fengnir frá fótbolti.net.
Íslenski boltinn Tengdar fréttir Kolbeinn tryggði Leikni sigur á Fjölni Kolbeinn Kárason tryggði Leikni Reykjavík sigur á Fjölni í riðli 4 í Lengjubikar karla, en liðin mættust í Egilshöll í dag. 21. febrúar 2016 18:05 Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira
Kolbeinn tryggði Leikni sigur á Fjölni Kolbeinn Kárason tryggði Leikni Reykjavík sigur á Fjölni í riðli 4 í Lengjubikar karla, en liðin mættust í Egilshöll í dag. 21. febrúar 2016 18:05