Fjórtándu kálfameiðsli Kompanys | Frá í mánuð hið minnsta Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. mars 2016 11:30 Kompany þarf að horfa á næstu leiki City úr stúkunni. vísir/getty
Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City, verður frá næsta mánuðinn vegna kálfameiðsla. Kompany þurfti að fara af velli snemma leiks þegar City gerði markalaust jafntefli við Dynamo Kiev á Etihad í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær. City vann fyrri leikinn í Úkraínu 1-3 og er því komið áfram í 8-liða úrslit í fyrsta sinn í sögu félagsins. Kompany missir þó væntanlega af fyrri leiknum í 8-liða úrslitunum sem fer fram annað hvort 5. eða 6. apríl. „Hann verður frá í a.m.k. mánuð,“ sagði Manuel Pellegrini, knattspyrnustjóri City, eftir leikinn í gær. „Vincent verður að vera sterkur andlega. Það er erfitt að sætta sig við þetta en það er ekkert annað í boði,“ bætti Sílemaðurinn við. Kompany er tíður gestur á sjúkralistanum en þetta er í 14. sinn sem hann meiðist á kálfa síðan hann kom til City 2008. Mikilvægi Belgans fyrir City er gríðarlegt en liðið hefur fengið á sig mark á 156 mínútna fresti þegar hann er inn á vellinum en á 70 mínútna fresti án hans.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Tengdar fréttir Markalaust hjá Norwich og Man. City Norwich og Manchester City gerðu óvænt markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. 12. mars 2016 14:30 Koeman: Arsenal og Man City eru úr leik í titilbaráttunni Ronald Koeman, knattspyrnustjóri Southampton, segir að Arsenal og Manchester City séu úr leik í baráttunni um enska meistaratitilinn. 15. mars 2016 20:30 Ranieri: Arsenal og Man. City geta ennþá unnið titilinn Claudio Ranieri, knattspyrnustjóri toppliðs Leicester City, lítur ekki á það þannig að Leicester og Tottenham muni berjast um enska meistaratitilinn í átta síðustu umferðunum. Hann telur að bæði Arsenal og Manchester City séu enn með í baráttunni. 15. mars 2016 10:30 Mest lesið Kemur alltaf í Þór Íslenski boltinn „Fyrirgefðu mamma“ Enski boltinn Extraleikarnir: Nablinn varð náfölur og ældi endalaust eftir keppni Körfubolti Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Fótbolti Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Enski boltinn Sjáðu Albert í essinu sínu þrátt fyrir innbrotið Fótbolti Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool Enski boltinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Handbolti Liðsfélagi Sveindísar spilaði sinn fyrsta leik eftir hjartastoppið Fótbolti Fær ekki að spila hjá Liverpool en er kominn í norðurírska landsliðið Enski boltinn Fleiri fréttir Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool „Fyrirgefðu mamma“ Úlfarnir unnu upp tveggja marka forskot og voru hársbreidd frá sigri „Allir vildu að hann yrði áfram hjá Man. United“ Fær ekki að spila hjá Liverpool en er kominn í norðurírska landsliðið Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Guardiola aflýsti æfingu liðsins Dómarinn festist á leikmannafundi Chelsea „Þeir eru líka að skíta á sig“ Chelsea hlaut bann og þunga sekt eftir ólöglegar leynigreiðslur Fernandes einn af örfáum sem kæmist í gullaldarlið United Sjáðu Richarlison refsa Liverpool og Bruno nálgast metið Afar vandræðalegt viðtal við Tudor: „Erum við búnir eða ekki?“ Carragher brjálaður: „Létu Tottenham líta út fyrir að vera fínt lið“ Rooney vill að Carrick fái starfið: „Vissi að þetta myndi gerast“ „Ef við höldum svona áfram verðum við sáttir með að komast í Sambandsdeildina“ Richarlison tryggði Tottenham fyrsta stigið undir stjórn Tudors Sesko innsiglaði þýðingarmikinn sigur Manchester United Segir aðeins eina ástæðu fyrir því að Tudor er enn í starfi Hetjan mætti í vígahug í viðtal: „Algjört kjaftæði“ Mörkin úr enska: Sextán ára skrifaði söguna með Arsenal Töfrandi stund fyrir sextán ára strák: „Þetta er bara ekki eðlilegt“ Gamla Skyttan veitti City þungt högg Dugði Chelsea ekki til sigurs að umkringja dómarann Sextán ára gulltryggði Arsenal mikilvægan sigur Stórfurðulegt atvik fyrir leik Chelsea og dómarinn í aðalhlutverki Furðumark skildi á milli á Leikvangi ljóssins Ratcliffe segir að Carrick sé að gera frábæra hluti Tilbúinn að bjarga Tottenham: „Kranjcar, Crouchy og Defoe koma allir aftur“ Sjá meira
Markalaust hjá Norwich og Man. City Norwich og Manchester City gerðu óvænt markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. 12. mars 2016 14:30
Koeman: Arsenal og Man City eru úr leik í titilbaráttunni Ronald Koeman, knattspyrnustjóri Southampton, segir að Arsenal og Manchester City séu úr leik í baráttunni um enska meistaratitilinn. 15. mars 2016 20:30
Ranieri: Arsenal og Man. City geta ennþá unnið titilinn Claudio Ranieri, knattspyrnustjóri toppliðs Leicester City, lítur ekki á það þannig að Leicester og Tottenham muni berjast um enska meistaratitilinn í átta síðustu umferðunum. Hann telur að bæði Arsenal og Manchester City séu enn með í baráttunni. 15. mars 2016 10:30