Ítalskt félag hafði áhuga á Hauki: Var eiginlega drepið í fæðingu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2016 08:30 Haukur Helgi Pálsson. Vísir/Anton
Íslenski landsliðsmaðurinn Haukur Helgi Pálsson hefði getað farið til ítalska félagsins Cantú á dögunum en þegar Haukur samdi við Njarðvík í haust þá var ekkert ákvæði í samningi hans um að hann gæti farið út áður en tímabilinu lýkur. Haukur Helgi staðfesti áhuga ítalska félagsins í viðtali við Morgunblaðið í dag. „Það var ekki komið tilboð á borðið heldur fyrirspurn og mikill áhugi. Ég er ekki með það inn í samningi mínum við Njarðvík að geta farið út aftur svo þetta var eiginlega drepið í fæðingu," sagði Haukur Helgi Pálsson í samtali við Guðmund Hilmarsson á Morgunblaðinu. Haukur Helgi er að koma til baka eftir hnémeiðsli og lék sinn fyrsta leik með Njarðvíkurliðinu í nokkurn tíma í lokaumferð deildarkeppninnar. Haukur vildi komast til ítalska liðsins en Njarðvíkingar voru ekki tilbúnir að missa hann rétt fyrir úrslitakeppni. „Ég ræddi aðeins við Njarðvíkingana. Þetta var spennandi og ég er spenntur fyrir því að komast aftur út en svona er þetta bara. Ég verð að standa við gerðan samning og ég skil vel sjónarmið Njarðvíkinga," sagði Haukur í fyrrnefndu viðtali. Haukur Helgi var með 18,4 stig, 7,3 fráköst og 4,1 stoðsendingu að meðaltali með Njarðvík í deildarkeppninni en liðið vann 9 af 16 leikjum sem hann spilaði en tapaði 4 af 6 leikjum án hans. AV Cantu er eins og er í 10. sæti ítölsku deildarinnar og í mikilli baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Cantu er á Norður-Ítalíu rétt fyrir norðan Mílanó. Haukur mun því klára tímabilið með Njarðvík og framundan er einvígi við Stjörnuna í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar.
Dominos-deild karla Mest lesið Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Konate gæti farið frítt frá Liverpool Sport Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Elías Már skrifar undir hjá kínversku liði Sport Hákon skoraði tvö í vináttuleik Sport Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport Leik lokið: Svíþjóð 4 - 1 Þýskaland | Úrslitaleikur um efsta sætið Fótbolti „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Sport Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Íslenski boltinn Fleiri fréttir Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn Sjá meira