Fótbolti

Aron fékk mun betri einkunn en Eiður Smári | Sjáðu markið hans Arons

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Sigurðarson í leik með Fjölni.
Aron Sigurðarson í leik með Fjölni. Vísir/Vilhelm
Aron Sigurðarson var valinn besti maður vallarins í hans fyrsta leik í norsku úrvalsdeildinni í gær þegar Tromsö gerði 1-1 jafntefli við Molde.

Aron tryggði sínu liði stig með frábæru marki á 70. mínútu leiksins. Verdens Gang gaf Aroni sjö í einkunn og valdi hann besta mann leiksins.

Eiður Smári Guðjohnsen var að spila sinn fyrsta leik með Molde í þessum umrædda leik og fékk hann fimm í einkunn. Aron stóð sig því mun betur að mati blaðamanns Verdens Gang.

Ole Gunnar Solskjær, þjálfari Molde, var hinsvegar nýbúinn að taka Eið Smára Guðjohnsen af velli þegar Aron skoraði jöfnunarmarkið.

Markið hans Aron má sjá á heimasíðu Tromsö-liðsins ásamt svipmyndum frá leiknum í gær. Þar má einnig sjá Eið Smára í sínum fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni.

Eiður Smári og félagar voru komnir í 1-0 í leiknum eftir aðeins 35 sekúndur eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.  Eiður Smári sést líka leggja upp gott færi fyrir félaga sinn sem hefði þar nánast geta gulltryggt sigur Molde-liðsins.

Markið hans Arons kemur eftir tvær mínútur og 45 sekúndur í myndbandinu. Aron fékk boltann fyrir utan teig, stakk sér á milli varnarmanna inn í teiginn, sólaði þá einn varnarmann til viðbótar áður en hann lagði boltann í fjærhornið.

Aron hefur verið að skora flott mörk á undirbúningstímabilinu og hann virðist hafa alla burði til þess að slá í gegn á sínu fyrsta tímabilið í Noregi. Hann hefur vissulega sýnt tilþrif sem þessi í Pepsi-deildinni undanfarin ár en menn voru að bíða eftir meiri stöðugleika.

Það verður því fróðlegt að sjá hvernig Aroni tekst að fylgja þessu eftir í næstu leikjum. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×