Pique: Ferguson eins og Guðfaðirinn Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. apríl 2016 13:45 Gerard Pique og Sir Alex á góðri stundu. vísirgetty
Gerard Pique, miðvörður Barcelona, verður í eldlínunni í kvöld þegar Evrópumeistararnir mæta Atlético Madrid í Spánarslag í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Sem upphitun fyrir leikinn tók Rio Ferdinand, fyrrverandi miðvörður Manchester United og samherji Pique, viðtal við spænska landsliðsmanninn fyrir BT Sport sem sýnir frá Meistaradeildinni á Englandi. Pique kom frá Barcelona til Manchester United en átti ekki leið inn í byrjunarliðið þar sem Rio Ferdinand og Nemanja Vidic mynduðu besta miðvarðapar Englands. Spánverjinn sneri því aftur til Barcelona 2008 og varð hluti af einu allra besta liði sögunnar undir stjórn Pep Guardiola. Ferdinand bað Pique um að bera saman tvo af bestu þjálfurum sögunnar, en miðvörðurinn var svo heppinn að spila bæði fyrir Sir Alex og Pep Guardiola sem mætir í ensku úrvalsdeildina með Manchester City næsta vetur. „Þegar ég var hjá Manchester United var Sir Alex Ferguson búinn að stýra liðinu í 20 ár þannig hans aðferðir voru töluvert öðruvísi en hjá Guardiola,“ segir Pique. „Guardiola var mjög ungur og að þjálfa sitt fyrsta lið. Hann var með mjög erfiðar æfingar. Það getur enginn ímyndað sér hversu ákafar æfingarnar voru.“ „Þegar ég var hjá United var það Carlos Queiroz sem sá um æfingarnar en Ferguson var aðeins fyrir utan. Hann stýrði öllu og tók sér aðra stöðu,“ segir Pique. Ferdinand spurði þá hvort Ferguson hefði verið eins og Guðfaðirinn. „Nákvæmlega,“ svaraði Pique og bætti við: „Guardiola var alla daga á æfingasvæðinu en báðir hafa átt magnaða ferla,“ sagði Gerard Pique.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira