Íslenski boltinn

Gæti verið betra fyrir strákana að skora sjálfsmark | 17 ára liðið í stórfurðulegri stöðu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Getty
Íslenska sautján ára landsliðið í fótbolta hefur ekki skorað mark í fyrstu tveimur leikjum sínum í milliriðli EM en á samt ennþá möguleika á því að komast í úrslitakeppnina.

Það gæti jafnvel verið betra fyrir strákana að skora í eigið mark í lokin en í mark andstæðinganna.

Lokaumferðin fer fram í dag og þar þurfa menn að vera með reiknivélina á lofti til þess að finna út hver sé bestu úrslitin fyrir íslensku strákana.

Ísland mætir Grikklandi í dag og þar getur komið upp sú staða að það væri betra fyrir liðin að gera jafntefli en að vinna. Þetta kemur til meðal annars vegna þess að keppni er lokið í öllum milliriðlunum nema þeim íslenska.

Frakkar hafa unnið báða sína leiki í riðlinum og hafa þegar tryggt sér sigur í honum og þar af leiðandi sæti í úrslitakeppninni. Sigurvegari hvers riðils kemst áfram en einnig sjö af átta liðum sem endaði öðru sæti.  

Austurríki er í bestu stöðunni með stigi meira en Ísland og Grikkland en Austurríkismenn eiga líka eftir að mæta Frökkum.

Austurríki tryggir sér sæti á EM með sigri á Frökkum en ef Austurríki tapar leiknum þá eiga Ísland og Grikkland möguleika.

Þegar UEFA reiknar út besta árangur þjóða í öðru sæti tekur það ekki með árangurinn á móti neðsta liði riðilsins.

Það þýðir að það gæti komið sér illa fyrir bæði Ísland og Grikkland að vinna sinn leik fari svo að Austurríki tapi fyrir Frakklandi. Þá myndi sigur liðanna ekki telja í baráttunni um að vera eitt af sjö bestu liðunum í öðru sæti.

Tapi Austurríki á móti Frakklandi væri það besta í stöðunni fyrir Ísland og Grikkland að gera 2-2 jafntefli en þá myndi vítakeppni milli liðanna ráða því hvort liðið kemst áfram.

Bæði lið myndi náð einu af sjö bestu sætunum á skoruðum mörkum en vítakeppnin myndi ráða því hvort liðið fer áfram.

Hér má sjá gott yfirlit yfir stöðu mála í riðli Íslands fyrir lokaumferðina.

Leikur Íslands og Grikklands hefst klukkan 13.00 en Austurríki og Frakkland spila á sama tíma.

Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×