Innlent

Segir birtingu gagnanna tilraun til hvítþvottar

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna. Vísir/Vilhelm
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, segir birtingu gagna úr bókhaldi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknar, og eiginkonu hans, Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur, einungis tilraun til hvítþvottar. Gögnin breyti ekki þeirri staðreynd að hjónin hafi átt svokallað aflandsfélag á lágskattasvæði.

„Formaður Framsóknarflokksins hefur verið að reyna að klóra í bakkann með því að senda út á vefinn Excel-skjöl sem hann álítur nægjanleg gögn til þess að hreinsa sig væntanlega af því sem hann telur að á sig hafi verið borið. Það er að segja að hann hafi ekki staðið sína plikt og skilað tilheyrandi gögnum, CFC-skýrslum eða hverju öðru sem þeim hjónum ber að skila en hann sem sagt virðist vera að gera tilraun til þess að hvítþvo sig á því,“ sagði Bjarkey í störfum þingsins á Alþingi í morgun. Gögnin dugi að hennar mati ekki til.

Vill að skattaskýrslan verði birt

„Það breytir jú engu um það að þau áttu þetta félag og það er það sem skiptir máli í því samhengi. Það er siðferðið sem felst í því að velja sér þessa stöðu, fyrir utan svo það að leggja ekki fram skattaskýrslu fyrst hann telur ástæðu til þess að upplýsa um einhver gögn þeirra hjóna, þá er auðvitað hreinlegast og best til þess fallið í stað þess að birta einhver Excel-skjöl.“

Bjarkey sakaði forystumenn ríkisstjórnarflokkanna um ábyrgðarleysi í þessum efnum, og vísaði meðal í harðorðan pistil Skúla Eggerts Þórðarsonar ríkisskattstjóra í nýjasta tölublaði Tíundar um tíðrædd aflandsfélög.

„Margir hafa nú viðurkennt að þeir hafi verið að leita eftir leyndinni á meðan við sjáum hér forystufólk ríkisstjórnarflokkanna neita dag eftir dag að þeir eigi nokkuð í skattaskjóli. Jafnvel að maður gæti haldið að nöfn þeirra hefðu ekki einu sinni birst í Panama-skjölunum. Slíkur er hvítþvotturinn að verða,“ sagði Bjarkey.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×