Gestirnir fengu smjörþefinn af því sem koma skildi strax á þriðju mínútu þegar Ragnar Sigurðsson skallaði yfir af markteig eftir hornspyrnu Gylfa Þórs Sigurðssonar. Áhorfendur létu vel í sér heyra í kvöld og stúkurnar tvær voru nýbyrjaðar að kalla sín á milli „Áfram Ísland“ þegar fyrsta markið leit dagsins ljós. Það kom ekki úr óvæntri átt því Kolbeinn Sigþórsson skoraði sitt 20. mark í 39 leikjum.

Yfirburðir Íslands voru töluverðir en þó ekki án veikleikamerkja. Hannes Þór þurfti tvívegis að taka á honum stóra sínum í fyrri hálfleik. Í fyrra skiptið varði hann með fótunum af stuttu færi en í það síðara hörkuskot utan af velli. Þess utan greip hann vel inn í og minnti alla á að hann er fyrsti kosturinn á milli stanganna.
Hápunktur fyrri hálfleiksins var viðstöðulaust þrumuskot Birkis Más Sævarssonar á 20. mínútu sem söng efst í markhorninu. Fyrsta mark bakvarðarins fyrir landsliðið en Birkir Már hefur verið besti kosturinn í stöðuna í tæpan áratug en oft fengið óvægna gagnrýni. Hann verður í byrjunarliðinu gegn Portúgal í Saint-Étienne og handsalaði þann samning með þessu draumamarki.

Síðari hálfleikurinn var ágæt skemmtun þótt ekki væri um sömu markaveislu að ræða. Eiður Smári kom inn á snemma í hálfleiknum og var mikið í boltanum. Félagar hans á vellinum virtust hins vegar oft á tíðum full uppteknir af því að leyfa honum að skora mark. Það bar loks árangur tæpum tíu mínútum fyrir leikslok eftir frábæran undirbúning Gylfa og Theodórs Elmars. Skömmu áður hafði hann brennt af tveimur dauðafærum og litlu seinna björguðu gestirnir á ævintýralegan hátt þrumuskoti Eiðs úr teignum sem stefndi í vinkilinn.

Þrátt fyrir að hafa glímt við meiðsli og hafa átt erfiðan vetur í Frakklandi skoraði Kolbeinn. Alfreð var mjög sprækur í fyrri hálfleiknum sem veit á gott fyrir EM. Aron Einar var venjulega akkerið á miðjunni en virkar ekki í frábæru leikformi. Hann spilaði þó allan leikinn en það er algjört lykilatriði að hann verði klár í slaginn eftir viku gegn Portúgölum.
Strákarnir halda utan á morgun til bæjarsins Annecy í frönsku ölpunum þar sem æft verður fram að leiknum gegn Cristiano Ronaldo og félögum í Saint-Étienne þriðjudaginn 14. júní.
Sverrir Ingi: Hefði klárlega átt að skora þarna
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn í hjarta varnarinnar þegar Ísland vann 4-0 sigur á Liechtenstein í general-prufunni fyrir EM á Laugardalsvellinum í kvöld.
Sverrir kvaðst ánægður með leikinn og það sem íslenska liðið fékk út úr honum.
„Það voru ýmis atriði sem var lagt upp með fyrir leikinn og ég held að við höfum svarað kalli þjálfarana í kvöld,“ sagði Sverrir eftir leik.
Ísland komst yfir á 10. mínútu þegar Kolbeinn Sigþórsson skoraði sitt tuttugasta landsliðsmark. Sverrir segir að það hafi verið þægilegt að fá mark svona snemma.
„Klárlega, það er alltaf gott að skora snemma á móti svona liðum, þar sem þú ert meira með boltann. Við hreyfðum boltann vel milli kanta og skoruðum fjögur góð mörk,“ sagði Sverrir.
Hann segir mikinn heiður að spila með manni eins og Eiði Smára Guðjohnsen sem skoraði fjórða og síðasta mark Íslands á 82. mínútu.
„Maður var bara lítill gutti þegar hann var að vinna alla þessa stóru titla í Evrópu. Það eru forréttindi að fá að taka þátt í þessu og maður lærir ótrúlega mikið af því að vera í kringum þessa leikmenn,“ sagði Sverrir sem fékk dauðafæri til að skora í þriðja landsleiknum í röð en skallaði yfir.
„Boltinn sleikti slána en ég hefði klárlega átt að skora þarna. Það hefði verið ótrúlegt að skora í þremur landsleikjum í röð. Kannski á maður þetta inni í Frakklandi,“ sagði Sverrir sem gerir sér engar vonir um að vera í byrjunarliðinu gegn Portúgal í fyrsta leik á EM. Hann segist hins vegar vera klár ef kallið kemur.
Arnór Ingvi: Verður bara að koma í ljós hvort ég byrji
Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 69 mínúturnar þegar Ísland bar sigurorð af Liechtenstein, 4-0, í síðasta leiknum fyrir EM á Laugardalsvellinum í kvöld.
„Við erum tiltölulega ánægðir þótt við hefðum getað gert eitthvað betur. 4-0 var flott,“ sagði Arnór Ingvi sem sagði gott að fá fyrsta markið snemma í leiknum.
„Það var ekki nein pressa á okkur. Við ætluðum bara að gera það sem við ætluðum að gera. En það var gott að fá markið svona snemma, þá gat maður andað léttar,“ sagði Arnór Ingvi sem kvaðst nokkuð sáttur með sitt framlag í leiknum í kvöld.
„Ég kom ágætlega inn í þetta þótt það sé alltaf hægt að gera eitthvað betur,“ sagði Arnór Ingvi. En gerir hann sér vonir um að byrja í fyrsta leiknum í Frakklandi.
„Ég er ekki að setja neina pressu á það. Það verður bara að koma í ljós,“ sagði Njarðvíkingurinn að lokum.