Skoðun

Forseti fyrir framtíðina

Halla Tómasdóttir skrifar
Í dag velur þjóðin nýjan forseta. Kosningarétturinn er hornsteinn lýðræðisins, tækifæri sem hvert og eitt okkar hefur til að hafa bein áhrif. Ég vil hvetja alla til að nýta sinn rétt og velja þann sem þeir einlæglega telja besta kostinn í starfið. Það skiptir máli hver verður forseti Íslands.

Ég hef fundið fyrir miklum meðbyr síðustu daga. Ég heyri að fólk vill kynna sér málin, vita hvað frambjóðandinn sem það greiðir atkvæði stendur fyrir, hefur gert og reynt, og hvernig fulltrúi lands og þjóðar hann mun verða.

Mikilvægasta verk forseta Íslands er að vinna fyrir fólkið í landinu. Ég bý að fjölbreyttri reynslu og góðu alþjóðlegu tengslaneti og mun leggja mig fram um að gera gagn. Ég held að persónulegir eiginleikar mínir henti þessu starfi vel, og ég hef kjark til að standa með sjálfri mér og minni þjóð. Ég heiti því að beita mínu áhrifavaldi til þess að hér ríki víðtækt jafnrétti og að við sýnum hvert öðru virðingu. Á Íslandi skipta allir máli: aldur, búseta, kyn, uppruni eða atgervi eiga ekki að standa í vegi fyrir því að við fáum tækifæri til að blómstra. Við eigum að styðja við þá sem minna mega sín og tryggja eldri borgurum áhyggjulaust ævikvöld.

Börnin og náttúra landsins eru það dýrmætasta sem okkur er falið að annast. Börnin okkar eru framtíðin og ég ber ómælda virðingu fyrir þeim sem sinna menntun þeirra og þroska. Það er mikilvægt að börnin okkar og unga fólkið fái tækifæri til að reyna á sig og sjá heiminn, en ég vil að þau velji að setjast að og búa sitt framtíðarheimili á Íslandi. Það er okkar að gæta þess að það samfélag sem við byggjum upp sé aðlaðandi kostur fyrir unga fólkið. Náttúra Íslands er einstök og ómetanleg. Við eigum að koma fram við hana af virðingu og auðmýkt, njóta gjafa hennar en gæta þess að skila henni heilbrigðri til næstu kynslóðar.

Íslendingar hafa margoft sýnt í verki að þeir standa saman þegar á reynir. Þegar við stöndum saman eru okkur allir vegir færir. Stöndum saman að vali næsta forseta, nýtum kosningaréttinn og veljum hæfasta frambjóðandann!




Skoðun

Sjá meira


×