Dee sneri á dauðann og snýr aftur í Nágranna Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 16. september 2016 11:24 Ein vinsælasta persóna Nágranna frá upphafi snýr aftur eftir 13 ára fjarveru. Vísir
Það er þekkt stef í hinum harða heimi sápuópera að dauðinn er teygjanlegt hugtak. Það er eitthvað sem aðdáendur Nágranna munu fá að kynnast enn á ný þegar Dee Bliss, sem talin var hafa látist á vofeiflegan hátt fyrir þrettán árum, snýr aftur í þættina vinsælu. Dee, sem leikinn er af Madeleine West, var ein vinsælasta persónan í Nágrönnum skömmu eftir aldamót og kætti það aðdáendur mjög þegar hún og Toadie, ein lífseigasta persóna þáttanna, fundu ástina og giftu sig með mikilli viðhöfn. En óheppnin virðist elta Toadie á röndum og þegar hjónakornin voru á leið frá brúðkaupi sínu ók Toadie bíl sínum fram af hengiflugi beint út í sjó. Toadie slapp án skrámu en hvorki fannst tangur né tetur af Dee sem talin var hafa látist þrátt fyrir að líkið hafi aldrei fundist. Atriðið þótti sláandi, líkt og sjá má snemma í myndbandinu hér að neðan. Er það gjarnan ofarlega á lista yfir hræðilegustu dauðdaga í sögu þáttanna.Var Toadie lengi að jafna sig eftir „dauða“ sinnar heittelskuðu eiginkonu en er þó nýbúinn að gifta sig á ný, 13 árum frá brotthvarfi Dee. Óhætt er þó að fullyrða að endurkoma Dee muni reyna á hjónabandið. Mun Madeleine West leika Dee í nokkrum þáttum sem sýndir verða ytra í desember og janúar. Hér á Íslandi eru þættirnir um hálfu ári á eftir sýningum ytra og því má búast við að íslenskir aðdáendur þáttanna verði límdir við sjónvarpið næsta sumar. Þetta er ekki í fyrsta sinn, og líklega ekki í það síðasta, sem þáttastjórnendur Nágranna hafa endurlífgað vinsæla persónu. Frægasta tilvikið er líklega Harold Bishop sem hvarf í sjóinn, líkt og Dee, en sneri aftur tíu árum síðar.
Bíó og sjónvarp Tengdar fréttir Nágranna-stjarna átti erfitt með að lifa ódýrt á Íslandi James Mason, sem leikur Chris Pappas í Nágrönnum, ber Íslendingum söguna vel og segir þá sérstaklega indæla. 15. september 2015 12:30 Íslendingar fá ekki nóg af Glæstum vonum „Þessir þættir eru einfaldlega of vinsælir hérna til að hætta sýningum á þeim,“ segir Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri dagskrársviðs Stöðvar 2, um sápuóperuna Bold and the Beautiful. 30. nóvember 2011 10:00 Brooke fer úr Glæstum vonum yfir í Nágranna Brooke Logan leikur í Nágrönnum. 25. mars 2016 22:29 Neighbours-leikari til landsins: „Hápunktur lífs míns að koma til Íslands“ Alan Fletcher heldur tónleika á Spot í janúar. Hann er hvað þekktastur fyrir að leika Karl Kennedy í Neighbours og ætlar að gefa sér tíma til að spjalla við aðdáendur sína þegar hann heimsækir land og þjóð. 13. nóvember 2014 08:00 Alan Fletcher hágrét þegar Karl og Susan skildu „Það var atriði þar sem hann þurfti að horfa í augun á henni og segja: „Ég elska þig ekki lengur.“ Við hágrétum í kringum þetta atriði." 9. janúar 2015 12:16 Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira
Nágranna-stjarna átti erfitt með að lifa ódýrt á Íslandi James Mason, sem leikur Chris Pappas í Nágrönnum, ber Íslendingum söguna vel og segir þá sérstaklega indæla. 15. september 2015 12:30
Íslendingar fá ekki nóg af Glæstum vonum „Þessir þættir eru einfaldlega of vinsælir hérna til að hætta sýningum á þeim,“ segir Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri dagskrársviðs Stöðvar 2, um sápuóperuna Bold and the Beautiful. 30. nóvember 2011 10:00
Neighbours-leikari til landsins: „Hápunktur lífs míns að koma til Íslands“ Alan Fletcher heldur tónleika á Spot í janúar. Hann er hvað þekktastur fyrir að leika Karl Kennedy í Neighbours og ætlar að gefa sér tíma til að spjalla við aðdáendur sína þegar hann heimsækir land og þjóð. 13. nóvember 2014 08:00
Alan Fletcher hágrét þegar Karl og Susan skildu „Það var atriði þar sem hann þurfti að horfa í augun á henni og segja: „Ég elska þig ekki lengur.“ Við hágrétum í kringum þetta atriði." 9. janúar 2015 12:16