Um skrifstofulífið og gagnslausa prentara Stefán Þór Hjartarson skrifar 15. september 2016 09:00 Eitt frægasta atriði myndarinnar sem marga hefur ábyggilega dreymt um að leika eftir.
Hin klassíska költmynd Office Space verður sýnd í Bíó Paradís á morgun og því vert að rifja hana aðeins upp hér á síðum Fréttablaðsins. Myndin hefur verið ákaflega vinsæl hjá skrifstofufólki þó að allir ættu að geta tengt við hana á einn eða annan hátt. Myndin kom út árið 1999 og segir frá Peter Gibbons en hann vinnur sem forritari hjá fyrirtækinu Initech. Hann er ákaflega óánægður í starfi enda er hann bara eitt tannhjól í klukkuverki kapítalismans þar sem persónan er bara númer og svo framvegis. Þetta er undirstrikað rækilega með yfirmanninum Bill Lumbergh sem hefur með vinsældum Office Space orðið ákveðin táknmynd fyrir ömurlegan yfirmann og líklega ófáir skrifstofustarfsmenn um allan heim sem hafa hermt eftir raddbeitingu hans í frasanum hans „yeah, that’ll be greeeaaaat“.Yfirmaðurinn leiðinlegi Bill Lumbergh.Í framhaldi af því að ráðgjafarnir Bob og Bob mæta á svæðið til að skera niður hjá Initech fer Peter í dáleiðslumeðferð – en dávaldurinn deyr áður en hann nær að vekja Peter af leiðslunni. Þetta veldur því að Peter verður ákaflega afslappaður – hann nær að losa af sér fjötra skrifstofulífsins og í frægu „montage“-atriði sjáum við Peter brjóta nánast allar reglur skrifstofunnar þar sem hann meðal annars verkar fisk á skrifborðinu sínu, leggur í stæðið hans Lumberghs og tekur niður skrifstofuskilrúmið sitt til að sitja fyrir framan glugga. Einn hápunktur myndarinnar er síðan þegar Peter og samstarfsmenn hans, Samir Nagheenanajar og Michael Bolton, rústa prentara sem hafði verið að ergja þá lengi.Myndin er skrifuð og leikstýrt af Mike Judge en honum er lífið á skrifstofunni afar hugleikið. Hann vann sjálfur á skrifstofu svipaðri og Office Space sýnir, auk þess að hafa unnið sem forritari í sprotafyrirtæki í Silicon Valley. Hann fór að taka eftir því að skrifstofulífið í Bandaríkjunum virtist allt eins alls staðar – raðir af skilrúmum (e. cublicles), allt húsnæði hannað eftir sömu teikningunni nánast og keðjuveitingastaðir í næsta nágrenni. Síðar nýtti Mike Judge reynslu sína af sprotafyrirtækjum í þættina Silicon Valley – þar eru mörg svipuð þemu í gangi og í Office Space og greinilegt að reynsla hans af skrifstofum og þeim kúltúr sem þar vill þrífst hefur brennt hann mikið. Og reynsla Mike Judge snerti greinilega einhverjar taugar því að þrátt fyrir að Office Space hafi ekki gengið neitt sérstaklega vel þegar hún kom fyrst út í bíó – halaði inn tæpar 13 milljónir dollara á móti þeim 10 milljónum sem hún kostaði í framleiðslu – þá var henni mjög vel tekið af gagnrýnendum og hún seldist vel bæði á VHS og DVD. Myndin varð sérstaklega vinsæl meðal starfsmanna í upplýsingatæknideildum og greinilegt að margir eiga sér sinn Bill Lumbergh og hafa háleita drauma um að feta í fótspor Peters – mæta með nýveiddan fisk á skrifstofuna, sofa út og leggja bölvaðan prentarann í rúst (jafnvel enn þann dag í dag – prentarar virðast ekki hafa batnað neitt síðan um miðjan tíunda áratuginn). Költmyndir eru enda myndir sem hafa einhvern neista í sér sem gerir þær þess virði að horfa á aftur og aftur – því ekki að kíkja aftur á Office Space á næstunni.Stiklu úr myndinni má sjá hér að neðan.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Tónlist Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Menning „Hún er komin til að vera“ Tónlist Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið „Ekki er þetta uppáhaldslagið þitt?“ Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Fleiri fréttir Dragi úr trúverðugleika Eddunnar og útiloki fagfólk Leikið sjónvarpsefni aftur hluti af Eddunni Segir sig frá hlutverkinu vegna óánægju með upprunann Ólafur Darri verður Þór Sækir um skilnað frá Schneider Kynlífssena sautján ára stúlku hafi splundrað samstarfi bræðranna Leo og félagar hlutu flestar tilnefningar Tíminn og vatnið frumsýnd á Sundance: „Viska afa í Teigó sigraði hjörtu þeirra“ Sinners slær met yfir flestar Óskarstilnefningar Balti tæklar veðmálasvindl með Wahlberg Þau eru tilnefnd fyrir verstu kvikmyndagerð síðasta árs Sveppi, Edda og Villi Neto keppa í Taskmaster Kvikmyndirnar sem beðið er eftir 2026 Maðurinn sem vann með Elton John, ABBA og Donnu Summer Fáum við einn þátt í viðbót af Stranger Things? Blaðri því út um allan bæ að hann sé næsti Bond Béla Tarr er látinn Óttast að kvikmyndahús endi eins og djassklúbbar Játaði ást sína á Jenner Marvel-stjarna varð fyrir heilaskaða Enduðu Stranger Things í Þjórsárdal Sjá meira