Sýrlendingur sem grunaður var um skipulagningu á sprengjuárás fannst látinn í fangaklefa Birgir Olgeirsson skrifar 12. október 2016 23:22 Það voru sýrlenskir flóttamenn sem fóru með manninn á lögreglustöð á mánudag en þá hafði hann verið á flótta undan yfirvöldum í Þýskalandi í tvo daga. Vísir/EPA
Sýrlenskur karlmaður, sem grunaður er um að hafa verið með sprengjutilræði í Berlín í undirbúningi, fannst látinn í fangaklefa sínum í Leipzig í Þýskalandi.Þetta kemur fram á vef fréttastofu breska ríkisútvarpsins BBC en þar er haft eftir talsmanni hjá dómsmálaráðuneytinu að rannsókn sé hafin á dauða mannsins sem var 22 ára og hét Jaber al-Bakr. Það voru sýrlenskir flóttamenn sem fóru með manninn á lögreglustöð á mánudag en þá hafði hann verið á flótta undan yfirvöldum í Þýskalandi í tvo daga. Lögreglan í Þýskalandi hafði verið með manninn undir eftirliti í nokkra mánuði. Hún hafði ráðgert að handtaka hann á heimili hans síðastliðinn laugardag náði ekki að hafa upp á honum. Frá því að hann var afhentur yfirvöldum hafði Jaber al-Bakr verið í hungurverkfalli en hann var undir eftirliti fangavarða allan sólarhringinn. Hann hafði fengið hæli í Þýskalandi eftir að hafa komið inn í landið í fyrra. Þýska leyniþjónustan hafði fengið upplýsingar um að hann væri mögulega með árás í undirbúningi og var haft samband við lögregluna í kjölfarið. Lögreglan greindi síðar fjölmiðlum frá því að við rannsókn á al-Bakr hafði komið í ljós að hann hafði fengið upplýsingar um hvernig búa á til sprengju á netinu og hafði komist yfir sprengiefni.
Flóttamenn Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Sjá meira