Guðlaugur tekur við Keflavíkurliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. október 2016 18:47 Eysteinn Húni Hauksson, Jón G. Benediktsson og Guðlaugur Baldursson. Mynd/Knattspyrnudeild Keflavíkur
Guðlaugur Baldursson er tekinn við sem þjálfari B-deildarliðs Keflavíkur í fótboltanum en hann tekur við starfi Þorvaldar Örlygssonar. Guðlaugur Baldursson skrifaði undir þriggja ára samning en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Keflavík í kvöld. Guðlaugur hefur einnig fengið fyrrum leikmann Keflavíkurliðsins til að aðstoða sig á komandi sumri. Guðlaugi til aðstoðar verður nefnilega Eysteinn Húni Hauksson sem kom til starfa hjá knattspyrnudeildinni síðastliðið haust og þekkir afar vel til félagsins sem fyrrum leikmaður og aðstoðarþjálfari. Guðlaugur hefur undanfarin fimm ár verið aðstoðarþjálfari hjá Íslandsmeisturum FH ásamt því að stýra afreksþjálfun hjá þeim. Árin 2005 til 2006 var hann með meistaraflokk karla hjá ÍBV og á árunum 2008 til 2011 þjálfaði hann lið ÍR. Guðlaugur hefur hjálpað FH-liðinu til að vinna þrjá Íslandsmeistaratitla á undanförnum fimm árum. „Knattspyrnudeild Keflavíkur fagnar komu Guðlaugs og telur hann henta afar vel í það verkefni sem framundan er við að koma Keflavík aftur í fremstu röð. Reynsla og þekking Guðlaugs mun ennfremur nýtast gríðarlega vel í þeirri stefnumótun sem félagið hefur sett af stað undir forystu Margrétar Sanders hjá Strategíu," segir í fréttatilkynningunni frá Knattspyrnudeild Keflavíkur. Keflavík lék í Inkasso-deildinni í sumar í fyrsta sinn frá 2003 en liðið féll úr Pepsi-deildinni í fyrrahaust. Keflavík endaði í þriðja sæti Inkasso-deildarinnar en liðið var þó sjö stigum frá því að endurheimta sætið sitt. Keflavík tapaði aðeins þremur leikjum, færri en lið Grindavík sem fór upp í Pepsi-deildina, en ellefu jafntefli voru liðinu dýrkeypt þegar upp var staðið.
Íslenski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira