Ný lög til höfuðs Airbnb samþykkt í New York Una Sighvatsdóttir skrifar 22. október 2016 14:15 New York borg er stærsti markaður Airbnb í Bandaríkjunum en víða um heim er nú sótt að starfseminni vegna áhrifa hennar á almennan húsnæðismarkað.
Ný lög til höfuðs Airbnb voru samþykkt í New York ríki í gær. Fyrirtækið hefur nú þegar kært lagasetninguna. New York borg er stærsti markaður Airbnb í Bandaríkjunum en víða um heim er nú sótt að starfseminni vegna áhrifa hennar á almennan húsnæðismarkað. Frá árinu 2010 hefur verið ólöglegt í New York að leigja út heilar íbúðir til skemmri tíma en 30 daga. Það breytir því þó ekki að Airbnb hefur blómstrað því viðurlögin eru engin þótt fjöldi íbúðareigenda leigi út til ferðamanna í mun skemmri tíma. Til að komast fyrir þetta samþykkti ríkisstjóri New York, Andew Cuomo, í gær ný lög sem innleiða háar sektargreiðslur, sem nemur allt að 860.000 krónum, fyrir að auglýsa íbúð til færri en 30 daga. Innan örfárra klukkustunda höfðu eigendur Airbnb brugðist við með því að höfða mál gegn lagasetningunni fyrir alríkisdómstól Bandaríkjanna. Verðmæti Airbnb hefur þrefaldast á aðeins tveimur árum og er fyrirtækið nú metið á 30 milljarða dala, en það starfar á gráu svæði lagalega um allan heim. Yfirvöld í vinsælum ferðamannaborgum eins og Berlín, Barcelona og Amsterdam og San Francisco hafa undanfarið gert atlögu að starfseminni með hertum lögum, til þess að sporna við því að skammtímaleiga til ferðamanna geri heimamönnum ómögulegt að finna húsnæði til langs tíma. Nýju lögin í New York eru ein þau hörðustu sem sett hafa verið til þessa til höfuðs Airbnb í Bandaríkjunum og eru högg fyrir fyrirtækið enda er New York borg stærsta markaðssvæði fyrirtækisins í landinu og velti milljarði dala í tekjum á síðasta ári. Í málsókninni sem lögð var fram gegn ríkinu í gær kemur fram að eigendur Airbnb telji nýju lögin valda fyrirtækinu óbætanlegum skaða og setja óeðlilegar kvaðir á starfsemina með því að krefjast þess að hver einasta auglýsing sem þar birtist sé vöktuð. Þingkonan Linda Rosenthal sem mælti fyrir lögunum segir hins vegar að með þeim setji New York mikilvægt fordæmi fyrir Bandaríkin öll og önnur lönd sem glími við Airbnb. Á Íslandi taka ný lög um skammtímaleigu gildi í janúar á næsta ári en samkvæmt þeim verður fasteignareigendum ekki heimilt að leigja út íbúðir sínar í fleiri en 90 nætur á ári án þess að sækja um sérstakt leyfi til gistirekstrar. Líkt og í nýju lögum New York ríkis mun brot á lögunum nema sektargreiðslu, allt að milljón krónum.
Mest lesið Ása Steinars vann sigur gegn bandarísku markaðsfyrirtæki Viðskipti erlent „Það er gjá að myndast á leigumarkaðnum“ Viðskipti innlent Skipti í brúnni hjá Indó Viðskipti innlent Auðveldara verði að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðir Neytendur Ráðinn framkvæmdastjóri COWI á Íslandi Viðskipti innlent Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri Viðskipti innlent 30 ár í Frakklandi: „Á Íslandi virðist fólk keyra sig mjög mikið út“ Atvinnulíf Viðar nýr sölustjóri Wisefish Viðskipti innlent Questhjónin: „Sterkbyggðustu húsin voru barirnir og vændishúsin“ Atvinnulíf Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ása Steinars vann sigur gegn bandarísku markaðsfyrirtæki Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Bobbingastaður í bobba Ofurstinn flytur til Texas Hóta því að kæra forsetann fyrir embættisglöp vegna rafmyntabrasks Rafmyntarforstjóri játar sig sekan um að féfletta viðskiptavini Musk og félagar gerðu 97,4 milljarða dala tilboð í OpenAI Beina spjótum sínum að bandarískum tæknifyrirtækjum Allar auglýsingar Super Bowl á sama stað Sagðir ætla að hafna samruna við Honda Tollastríð hafið: „Ekki gott fyrir Ísland og lífskjör Íslendinga“ Gervigreind fyrir klink veldur Bandaríkjamönnum hausverk Kínversk kúvending leiddi til hruns vestanhafs Enn deila Musk og Altman MrBeast gerir tilboð í TikTok Eftirmaður Norman yfir LIV-mótaröðinni fundinn Höfða mál gegn Musk vegna kaupanna á Twitter Vilja banna farþegum að fá sér þriðja drykkinn á flugvellinum Meta birtir óumbeðnar gervigreindarmyndir af notendum Instagram Biden stöðvar japanska yfirtöku á US Steel Næstum allir nýir bílar í Noregi rafmagnsbílar Sjá meira