Sú stigahæsta í deildinni spilar í kvöld sinn fyrsta leik í 24 daga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. nóvember 2016 13:53 Carmen Tyson-Thomas hefur verið á bekknum í síðustu leikjum. Vísir/Eyþór
Kvennalið Njarðvíkur hefur þurft að spila án síns besta leikmanns í síðustu tveimur leikjum hafa nú endurheimt Carmen Tyson-Thomas sem er stigahæsti leikmaður Domino´s deildar kvenna. Carmen Tyson-Thomas er orðinn leikfær á ný eftir hnémeiðslin sem hún varð fyrir í upphafi mánaðarins. Hún mun spila sinn fyrsta leik í 24 daga en Domino´s deildin fer nú af stað á ný eftir landsleikjahlé. Carmen Tyson-Thomas verður nefnilega með Njarðvíkurliðinu í kvöld þegar Njarðvík heimsækir Stjörnuna í Ásgarð. Þetta kemur fram á fésbókarsíðu Njarðvíkinga. Carmen Tyson-Thomas meiddist í fyrri hálfleik í bikartapi í Grindavík 6. nóvember síðastliðinn. Hún er langstigahæsti leikmaður Domino´s deildar kvenna með 38,9 stig að meðaltali auk þess að vera frákastahæst með 16,3 fráköst í leik. Tyson-Thomas hefur hæsta framlagið í deildinni, 42,9 í leik, og þá er hún í þriðja sæti í bæði stoðsendingum (4,6 í leik) og í stolnum boltum (2,86 í leik). Njarðvíkur tapaði bikarleiknum í Grindavík með 15 stigum og þá hefur liðið tapað tveimur deildarleikjum sínum án Carmen Tyson-Thomas með samtals 50 stigum. Undanfarin tvö tímabil hefur Njarðvíkurliðið unnið 12 af 16 leikjum sínum með Tyson-Thomas innanborðs (75 prósent) en aðeins 4 af 9 leikjum án hennar (44 prósent). Það þarf því ekki að fara mörgum orðum um mikilvægi hennar eftir upptalningu á allri þessari mögnuðu tölfræði.
Dominos-deild kvenna Mest lesið „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis Formúla 1 Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Handbolti Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Fótbolti Dagskráin í dag: Íslendingaslagur af bestu gerð Sport Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Handbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira