Einfaldleikinn er stundum bestur Jónas Sen skrifar 10. desember 2016 11:15
Tónlist Kórtónleikar Jólatónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju. Stjórnandi: Hörður Áskelsson Organisti: Mattias Wager Einsöngvari: Maria Keohane Hallgrímskirkja þriðjudagurinn 6. desember Sænsk jólastemning var í algleymingi á tónleikum Mótettukórs Hallgrímskirkju á þriðjudagskvöldið. Ástæðan var sú að organistinn, Mattias Wager, er sænskur, og einsöngvarinn, Maria Keohane, er það líka. Wager er sérlega snjall í að leika af fingrum fram og því var spuni áberandi á efnisskránni. Orgelspuni var oft á milli laga, og í sumum tilvikum tók kórinn þátt í spunanum. Engu að síður var prógrammið ekki aðeins einhver tilraunamennska, þarna var hefðbundin músík líka sem flutt var á virðulegan máta. Eða hvað? Ef ég á að segja alveg eins og er þá saknaði ég þess síðarnefnda, þrátt fyrir að það hafi vissulega verið til staðar. Það var bara ekki nóg af því. Sópransöngkonan Maria Keohane var mjög ráðandi og þó hún hafi sungið glæsilega Rejoice Greatly úr Messíasi eftir Händel og annað í svipuðum dúr, voru hófsamari lög full ýkt í meðförum hennar. Tilfinningasemin var of mikil, útkoman átti það til að vera væmin. Söngkonan GERÐI of mikið í stað þess að leyfa tónlistinni að njóta sín í einfaldleika sínum. Wager var aftur á móti með allt á hreinu við orgelið. Það sem hann spilaði var svo sem ekki krefjandi, en spunarnir hans voru skemmtilegir. Þeir tóku á sig ólíkar myndir, allt frá villtum sveitadansi yfir í fjarlægar kirkjuklukkur. Orgelið býr yfir ótal möguleikum – enda er það kallað drottning hljóðfæranna. Kannski hefði mátt vera smá einleikur á efnisskránni. Kórinn söng fallega undir stjórn Harðar Áskelssonar, hreint og af innlifun. Spunarnir voru áhrifaríkir. Það var til dæmis dásamlegt þegar kórinn söng Hátíð fer að höndum ein um leið og hann gekk hægt inn í kirkjuna – sem leystist svo á undursamlegan hátt upp í allt annað lag. Sömuleiðis var Heims um ból í lokin magnað. En kórinn var bara í aukahlutverki á tónleikunum. Mistækur einsöngurinn var alltof áberandi, sem gerði dagskrána belgingslega. Ekkert er eins jólalegt og þegar Mótettukórinn syngur án einsöngs þekkta jólasálma. Stundum er minna meira. Það hefði mátt hafa í huga hér.Niðurstaða:Fínn en nokkuð tilgerðarlegur einsöngur, kórinn söng hins vegar prýðilega og organistinn var góður. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 10. desember 2016.
Tónlistargagnrýni Mest lesið Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Bíó og sjónvarp Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni Bíó og sjónvarp Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Lífið Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Tónlist Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Gagnrýni Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Lífið Fékk uppsagnarbréf, varð ófrísk og allt breyttist Lífið Aðalsteinn Bergdal er látinn Menning Samfélag í bleyti framlag Íslands á Feneyjartvíæringnum í arkitektúr Menning Foreldrar sofa meira en margir halda Áskorun Fleiri fréttir Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Lítið kjöt á beinum rándýrsins Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Klámhundarnir engu gleymt Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Hvað er það versta sem þú hefur gert? Allir komust lifandi út – nema Beethoven Hugljúft geimævintýri líður fyrir þreytandi þúsaldarhúmor Sjá meira
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Lífið
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Lífið