Mest aukning í ofbeldisbrotum Jón Hákon Halldórsson og Þórgnýr Einar Albertsson skrifa 24. desember 2016 07:00 Lögreglan lagði hald á mikið magn af E-pillum á árinu. vísir/Ernir
Skráðum hegningarlagabrotum fjölgaði um tæplega 20 prósent á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2015. Þetta kemur fram í skýrslunni Afbrot á höfuðborgarsvæðinu 2015 sem birt var í gær. Þetta er í tíunda sinn sem skýrslan er gefin út í þessari mynd. Umferðarlagabrotum fjölgaði einnig, en skráð umferðarlagabrot voru 28.665 á árinu. Það er 21 prósent fleiri brot en skráð voru að meðaltali síðustu þrjú ár á undan. Af hegningarlagabrotum fjölgaði ofbeldisbrotum hlutfallslega mest á milli ára, eða um 35 prósent. Fjölgunin árið 2015 er að mestu tilkomin vegna aukningar á minniháttar líkamsárásum, en nýtt verklag lögreglu í heimilisofbeldismálum tók formlega gildi 12. janúar 2015. Þetta nýja verklag skýrir þessa fjölgun. Gríðarleg aukning varð í haldlagningu á E-pillum. Alls var um 24 sinnum meira magn af slíkum haldlagt árið 2015 en árið 2014. Sömuleiðis var lagt hald á um sex sinnum meira magn af amfetamíni og kókaíni. Einnig bar á því að innbrotum fjölgaði. Tilkynnt var um 21 prósent fleiri innbrot en árið 2014 og bárust flestar tilkynningar á milli klukkan 16 og 19 á föstudögum og laugardögum.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Fleiri fréttir Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sjá meira