Félagar Alfreðs sóttu stig á Westfalen Tómas Þór Þórðarson skrifar 20. desember 2016 21:03 Svissneski markvörðurinn Marwin Hitz er að spila vel fyrir Augsburg. vísir/getty
Augsburg, lið Alfreðs Finnbogasonar í þýsku 1. deildinni í fótbolta, náði í sterkt stig til Dortmund í kvöld þegar 16. umferð deildarinnar fór af stað. Ji-Dong Won kom gestunum yfir á 33. mínútu en franska ungstirnið Ousmane Dembélé jafnaði metin á 47. mínútu eftir sendingu frá fyrrverandi United-manninum Shinji Kagawa. Dortmund gerði mikla orrahríð að marki Augsburg en gestirnir stóðu hana af sér og sigldu góðu stigi í hús. Dortmund-liðið hefur ollið miklum vonbrigðum á tímabilinu eftir að fara mikinn á félagaskiptamarkaðnum en liðið er í fjórða sæti með 27 stig. Augsburg er áfram í tólfta sæti með 18 stig en liðið er nú búið að vinna tvo leiki í röð og hefur aðeins tapað einum leik af síðustu sjö. Það er búið að vinna þrjá þeirra og gera þrjú jafntefli. Með Alfreð Finnbogason meiddan er Augsburg ekki að skora mikið en varnarleikur liðsins hefur verið sterkur sem er lykillinn að velgengni Augsburg síðustu vikur. Augsburg er aðeins búið að fá á sig fjögur mörk síðustu sjö leikjum, aldrei meira en eitt mark í leik, og er búið að halda hreinu þrisvar sinnum á þeim tíma.
Þýski boltinn Mest lesið Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Handbolti „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Fótbolti Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock Handbolti Engin Meistaradeild hjá Hákoni Arnari Fótbolti Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Handbolti Willum nýr forseti ÍSÍ með algjörum yfirburðum Sport „Ég byrjaði bara að gráta, ég réði ekki við neitt“ Handbolti „Ég ætla að leyfa stelpunum að njóta í kvöld“ Handbolti Fleiri fréttir Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Engin Meistaradeild hjá Hákoni Arnari „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Stórsigur Stólanna í Víkinni Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Sjálfum okkur verstar” Glæsimark frá Úlfu tryggði Stjörnunni stigin þrjú Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Dortmund náði sætinu á síðustu stundu Uppgjörið: Fram - Þór/KA 1-3 | Tvö mörk frá Söndru Maríu í sigri Þór/KA Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni „Verður stærsti dagur ævi minnar“ „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenskt mark, sjálfsmark og rautt spjald Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Aron á að hjálpa leikmönnum að hugsa ekki um ströndina Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Svona var blaðamannafundur Arnars Aron Einar með en enginn Gylfi Þróttur mætir bikarmeisturunum Sjá meira