Galaxy S8 símarnir verða lítið annað en skjáirnir Samúel Karl Ólason skrifar 24. janúar 2017 15:54 Mikið veltur á vel heppnaðri útgáfu S8 símanna. Vísir/Getty
Skjáir nýjustu símar Samsung, Galaxy S8, munu nánast fylla upp í alla framhlið þeirra. Báðar útgáfur símanna verða með ávalar hliðar og á botni þeirra verða innstungur fyrir heyrnartól. Þetta hefur Guardian eftir heimildarmönnum sem lýstu símunum fyrir blaðamönnum. Þeir segja að rammarnir utan um skjái símanna verði svo litlir að Samsung muni ekki geta komið einkennismerki fyrirtækisins fyrir á framhlið símanna. Auk þess munu eigendur þeirra geta aflæst símanna með því að skanna augu sín.Bgr birti nýverið myndir sem þeir segja af skjáhlífum fyrir S8. Vegna vandræða með útgáfu Galaxy S7 símanna verða nýju símarnir ekki kynntir á Mobile World ráðstefnunni í Barcelona í næsta mánuði, eins og undanfarin ár. Þess í stað verða þeir kynntir í seinni hluta mars og verða gefnir fyrst út þann 21. apríl. Þá verða S8 símarnir um fimm tommur að stærð og Note símarnir verða um sex tommur. Stærðirnar verða sem sagt sambærilegar við síðustu útgáfur Samsung.Guardian hefur einnig heimildir fyrir því að myndavélar símanna verði sambærilegar og þær sem voru í S7 símunum. Þó verður innbyggt í símanna gervigreind sem á að geta borið kennsl á hluti í gegnum myndavélina. Örgjörvar símanna verða nýir og smíðaðir eftir nýrri aðferð Samsung. Slíkir örgjörvar eru sagðir vera allt að þriðjungi fljótvirkari en aðrar gerðir af sömu stærð og sömuleiðis notast við minna rafmagn.
Mest lesið „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Atvinnulíf „Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Viðskipti innlent Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Viðskipti innlent Fanney tekur við af Erni hjá Lex Viðskipti innlent Bein útsending: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Viðskipti innlent Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Viðskipti innlent Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Viðskipti erlent Óli Páll til APRÓ Viðskipti innlent Birgir Ómar Haraldsson er látinn Viðskipti innlent „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira