Þó stóð til að tökunum myndi ljúka við enda síðustu viku.
Sjá einnig: Myndir frá ferðamönnum gefa vísbendingar um stórt hlutverk Íslands í Game of Thrones (Mögulegur Spoiler)
Harrington snúið aftur heim til sín í London í síðustu viku. Hann var hins vegar mættur aftur til Íslands á föstudaginn, samkvæmt Watchers on the Wall. Meðfylgjandi mynd var tekin hér í Reykjavík á föstudaginn. Konan sem tók hana segir Harrington hafa verið á sama hóteli og hún, en hann hafi farið af hótelinu eftir helgina.
Þá birti Winter Is Coming myndir af tökum í Dyrhólafjöru nú um helgina.
Fyrir neðan myndina verður fjallað um hvað tökurnar þýða mögulega. Þið vitið af því.
Vitað er að aðrir leikarar eins og Liam Cunningham (Davos Seaworth), Joe Dempsie (Gendry), Rory McCann (Hundurinn) og Kristofer Hivju (Tormund Giantsbane) voru hér á landi.
Hér fyrir neðan má sjá þegar fréttastofa Stöðvar 2 fór í heimsókn á tökustað Game of Thrones við rætur Vatnajökuls árið 2011. Rætt er við handritshöfundana Dan B. Weiss og David Benioff, Chris Newman meðframleiðanda, Snorra Þórisson, eiganda Pegasus og fleiri.