Þýskur gísl afhöfðaður á Filippseyjum Birgir Olgeirsson skrifar 27. febrúar 2017 15:56 Herinn á Filippseyjum hafði gert loftárás á bækistöðvar Abu Sayyaf í Sulu um liðna helgi. Vísir/Getty
Íslamskir skæruliðar á Filippseyjum hafa birt myndband sem sýnir þegar þýskur gísl er afhöfðaður. Greint er frá þessu á vef fréttastofu breska ríkisútvarpsins BBC en gíslinn var Jurgen Kantner sem var numinn á brott af snekkju sinni í nóvember síðastliðnum. Ferðafélagi hans, Sabine Merz, var myrt um borð í skútunni. Skæruliðarnir höfðu farið fram á ígildi 600 þúsund dollara í lausnargjald fyrir Kantner, sem er um það bil 64 milljónir íslenskra króna miðað við gengi dagsins í dag. Þeir höfðu farið fram á að það yrði greitt í síðasta lagi í gær. Kantner og Merz hafði áður verið rænt en þeim var haldið í 52 daga af sómalískum sjóræningjum árið 2008. Þeim var sleppt eftir að lausnargjald hafði verið greitt. Skæruliðahópurinn sem ber á byrgð á þessu heiti Abu Sayyaf sem er sagður sá illskeyttasti á suðurhluta Filippseyja. Er meðlimir hans þekktir fyrir að afhöfða fórnarlömb sín. Hópurinn hefur lýst yfir stuðningi við ISIS og hefur numið marga útlendinga sem og Filippseyinga á brott. Mörgum þeirra hefur verið sleppt gegn lausnargjaldi en aðrir eru enn í haldi. Lögreglan á Filippseyjum sagði að Kantner hefði verið myrtur á Indana-svæðinu í Sulu-héraði í gærkvöldi. Lík hans er þó ekki fundið. Herinn á Filippseyjum hafði gert loftárás á bækistöðvar Abu Sayyaf í Sulu um liðna helgi til að reyna að ná til þeirra fyrir sunnudagskvöld, sem voru síðustu forvöð til að greiða lausnargjaldið.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira