Keflavík og Njarðvík geta hjálpað hvoru öðru í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. mars 2017 15:30 Logi Gunnarsson og Hörður Axel Vilhjálmsson. Vísir/Samsett
Það er mikið undir í lokaumferð Domino´s deildar karla í kvöld en þá ræst hvaða lið tryggja sér sæti í úrslitakeppninni og hvaða lið situr eftir með sárt ennið. Það vill enginn fara í sumarfrí 9. mars og það má búast við mikilli spennu í leikjum kvöldsins. Mest er sennilega undir í leikjum ÍR og Keflavíkur í Seljaskóla annarsvegar og í leik Þórs og Njarðvíkur í Þorlákshöfn hinsvegar. Leikirnir verða báðir sýndur beint á sportstöðvum 365. Njarðvíkingar eru í erfiðustu stöðunni en þeir mega ekki tapa og svo gæti jafnvel farið að það dugi ekki. Njarðvík og Keflavík eru sannkallaðir erkifjendur í körfuboltanum en þau geta hjálpa hvoru öðru í lokumferðinni í kvöld. Það er ekki oft sem Keflvíkingar og Njarðvíkingar vilja að bæði þeir og nágrannar þeirra hinum megin við Stapann vinni leiki sína. Ef Njarðvík vinnur Þórsliðið í Þorlákshöfn þá eru þeir öruggir með sæti í úrslitakeppninni ef Keflavík vinnur ÍR á sama tíma.Sjá einnig:Liðin í 5. til 9. sæti geta öll endað með 22 stig Keflvíkingar þurfa líka að vinna ÍR-ingana ef þeir ætla að hækka sig í töflunni og þeir myndu þá líka njóta góðs af sigri Njarðvíkur á Þór. Keflavík kæmist þá upp fyrir Þór og upp í fimmta sætið. Keflvíkingar gætu reyndar komist alls leið upp í fjórða sætið með sigri en Grindvíkingar mega þá ekki vinna Skallagrím á heimavelli sínum. Njarðvíkingar gætu líka fengið hjálp frá Snæfelli í kvöld en ekkert gott gerist samt fyrir Njarðvíkinga í kvöld nema ef þeir ná að landa sigri í Þorlákshöfn.
Dominos-deild karla Mest lesið UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fótbolti „Eins og það væri verið að loka mig inni á heimavist“ Fótbolti HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Fótbolti „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Fótbolti „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Fyrirliði Ísraels: „Fengi langt bann ef ég segði skoðun mína“ Fótbolti Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Enski boltinn Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi Fótbolti Fleiri fréttir Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Sjá meira