Gagnrýna boðaðan niðurskurð í samgöngumálum á Vestfjörðum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. mars 2017 17:51 Vegurinn um Ódrjúgsháls í Gufudalssveit er meðal þeirra vegslóða sem stóð til að bæta Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
Boðaður niðurskurður ríkisstjórnarinnar á samgönguáætlun er áfall fyrir fyrirtæki og almenning á sunnanverðum Vestfjörðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum atvinnurekenda á sunnanverðum Vestfjörðum. Í tilkynningunni segir að umræddur niðurskurður komi langharðast niður á Vestfjörðum þar sem 1.200 milljónir króna sem voru á þessu ári eyrnamerktar Vestfjarðavegi um Gufudalssveit eru skornar niður að fullu, auk þess sem slegnar eru út af borðinu 400 milljónir króna sem fara áttu í vegbætur í Dynjandisheiði. Segir jafnframt að vegna þessa kraumi samfélagið af reiði, þar sem full sátt hafi verið um að viðkomandi framkvæmdir yrði að ráðast í og beðið hafi verið eftir þeim árum saman. Þrátt fyrir að 95 prósent af leiðinni til sunnanverðra Vestfjarða sé malbikuð, þá eru þau 5 prósent sem út af standa í raun ófær og útiloka nánast flutninga með fólk og vörur. Bent er á að fyrir kosningar hafi allir sýnt þessu skilning og stuðning og því veki furðu að hægt sé að slá framkvæmdir með þessum hætti út af borðinu. Íbúum sunnanverðra Vestfjarða líði eins og þeir hafi verið dregnir á asnaeyrunum fyrir kosningar með fyrirheitum um löngu tímabærar framkvæmdir. Íbúar muni ekki láta bjóða sér þessa niðurlægingu.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira