Mercedes bíllinn fór 75 hringi undir stjórn Bottas og aðra 95 undir stjórn Lewis Hamilton. Samtals fór bíllinn því 170 hringi í dag.
Sebastian Vettel á Ferrari átti afar góðan dag. Hann ók 139 hringi og var næst fljótastur. Hann var fjórðung úr sekúndu hægari en Bottas en á harðari dekkjagerð og tíminn því afar góður í þeim samanburði. Ferrari bíllinn virtist svo verða eldsneytislaus undir lok æfingarinnar og þurfti Vettel þá að hætta þátttöku á æfingunni.
Hugsanlega var Ferrari að láta bílinn verða eldsneytislausan viljandi. Með því getur liðið stillt mælana og vitað nákvæmlega hversu langt bíllinn keyrir.

Lance Stroll, nýliðinn hjá Williams hefur ekki sannað sig um borð í bíl liðsins. Annan daginn í röð skemmir hann bílinn með þeim afleiðingum að liðið þarf að hætta æfingum þann daginn. Ekki draumabyrjun fyrir þennan 18 ára ökumann.
McLaren liðið náði loksins ágætum æfingadegi, bíllinn fór 72 hringi með Fernando Alonso innanborðs.
Æfingar halda áfram í fyrramálið og Vísir fylgist áfram með gangi mála.