Ársbann fyrir kynþokka Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. apríl 2017 11:04 Sjálfsmyndir Denny Kwan á Facebook-síðu hennar fóru fyrir brjóstið á siðanefndinni. Denny Kwan
Siðanefnd menningarmálaráðuneytis Kambódíu hefur sett hina 24 ára gömlu Denny Kwan í ársbann frá þátttöku í skemmtanaiðnaðinum þar í landi eftir að hún neitaði að hætta klæða sig á „kynþokkafullan hátt.“ Bannið kemur rúmu ári eftir að Kwan var skipað að sækja klæðaburðarnámskeið á vegum ráðuneytisins eftir að myndir af henni léttklæddri birtust í kambódískum fjölmiðlum. Myndirnar hafði hún áður birt á Facebook-síðu sinni þar sem hún er með rúmlega 300 þúsund fylgjendur.Formaður siðanefndarinnar segir í samtali við Phnom Penh Post að Kwan hafi rofið samkomulag sem hún undirritaði við nefndina í maí á síðasta ári. Hann segir bannið í fullkomnu samræmi við siðareglur listamanna þar sem kveðið er á um að þeir skuli klæða sig með reisn og þjóðareinkenni í huga. Ráðuneytið hefur farið þess á leit við listamannasamtök, sjónvarpsstöðvar og aðra aðila skemmtanaiðnaðarins í Kambódíu að Kwan fái engin verkefni á komandi ári - hvort sem það er í kvikmyndum, tónlistarmyndböndum eða í karókíútsendingum í sjónarvarpi.Kwan sagði í gær að hún hefði ekki enn fengið tiltal frá ráðuneytinu. Hún hefði þó ekki miklar áhyggjur af banninu enda sé hún í sjálfstæðum atvinnurekstri og sæi fram á að spjara sig ágætlega þrátt fyrir að geta ekki starfað í skemmtanabransanum. „Ég veit að ég hef rétt á því að klæða mig eins og ég vil en menning okkar, Kambódíumanna, er ekki opin fyrir þvi,“ sagði Kwan. „Ég mun reyna að vera ekki eins kynþokkafull og venjulega á myndunum sem ég birti á Facebook.“ Aðdáendur hennar hafa reiðst banninu og krafist þess að það verði tekið til endurskoðunar. Nánar má fræðast um málið á vef Phnom Penh Post. Þá var Denny Kwan með beina útsendingu á Facebook-síðu sinni í morgun sem sjá má hér að neðan.
Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Fleiri fréttir Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Sjá meira