Segir lækna hafa logið um þyngdartap systur hennar Birgir Olgeirsson skrifar 25. apríl 2017 16:33 Eman fyrir aðgerðina. Vísir/AFP
Systir Eman Abd El Aty, egypskrar konu sem er sögð hafa verið sú þyngsta í heimi, hefur sakað lækna um að ljúga til um þyngdartap Eman eftir að hafa gengist undir hjáveituaðgerð í Indlandi.Greint er frá ásökunum systurinnar á vef fréttastofu breska ríkisútvarpsins BBC. Læknar á Saifee-sjúkrahúsinu í Mumbaí framkvæmdu aðgerðina á Eman Abd El Aty en í síðustu viku sögðu þeir hana hafa misst 250 kíló í kjölfar hennar, en fyrir var hún 500 kíló að þyngd. Systir hennar vill meina að þessar fullyrðingar læknanna séu ósannar og bætti við að systir hennar væri við afar slæma heilsu og telur líkur á að hún hafi hlotið heilablóðfall. Forsvarsmenn Saifee-sjúkrahússins hafa brugðist ókvæða við þessum ásökunum. Systirin heitir Shaimaa Selim sem birti stutt myndband á samfélagsmiðli á mánudag þar sem hún hélt því fram að systir hennar gæti ekki talað eða hreyft sig og að hún hefði ekki lést jafn mikið og læknarnir hefðu haldið fram. „Hann vildi ekki vigta hana fyrir aðgerðina né eftir hana. Ef hann hefur einhverjar sannanir fyrir þessu ætti hann að sýna myndband af því þegar hún var vigtuð fyrir og eftir aðgerðina,“ sagði Shaimaa við BBC um Dr. Muffazal Lakdawala sem fór fyrir aðgerðinni á systur hennar.Shaimaa sagði systur sína þurfa að notast við súrefnisgrímu og að hún fengi mat í gegnum slöngu.BBC ræddi við talskonu sjúkrahússins sem sagði Eman hafa verið vigtaða síðastliðinn mánudag og að þá hafi hún verið 172 kíló að þyngd.Eman varð fyrir heilablóðfalli ellefu ára gömul. Sökum offitu hafði hún ekki yfirgefið heimili sitt í Alexandríu í Egyptalandi síðastliðin 25 ár. Henni var flogið í sérútbúinni flugvél til Mumbaí í janúar síðastliðnum þar sem hún gekkst undir hjáveituaðgerð á maga. Læknarnir segja hana nú passa í hjólastól og að hún geti setið ein og óstudd lengur en áður. Systir hennar er sögð ósátt við forsvarsmenn sjúkrahússins því þeir telja Eman vera að nálgast þá stund að geta farið aftur heim til Alexandríu. Það hugnast systur hennar ekki sem segist ekki geta séð um Eman og hefur grátbeðið sjúkrahúsið um að halda henni lengur og hjálpa henni að ná fullri heilsu.The "world's heaviest woman" has shed 250 kg -- half her weight -- in her two months of treatment in India pic.twitter.com/WTbH8vlP7B— AFP news agency (@AFP) April 21, 2017
Tengdar fréttir Þyngsta kona heims léttist um 250 kíló Egypska konan Eman Ahmed Abd El Aty, sem sögð er hafa verið þyngsta kona í heimi, hefur lést um 250 kíló á þremur mánuðum frá því að hún fór í meðferð vegna þyngdarinnar á Indlandi. 21. apríl 2017 20:50 Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira
Þyngsta kona heims léttist um 250 kíló Egypska konan Eman Ahmed Abd El Aty, sem sögð er hafa verið þyngsta kona í heimi, hefur lést um 250 kíló á þremur mánuðum frá því að hún fór í meðferð vegna þyngdarinnar á Indlandi. 21. apríl 2017 20:50