Fékk þyngri dóm í Hæstarétti fyrir að nauðga sautján ára stúlku Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. maí 2017 15:46 Stúlkan var sautján ára þegar brotið átti sér stað. Vísir/Getty
Hæstiréttur þyngdi í dag dóm yfir Marteini Jóhannssyni fyrir nauðgun í september árið 2014. Fórnarlambið var sautján ára stúlka á þeim tíma sem brotið var framið en henni var nauðgað í íbúð í Reykjavík. Hinn dæmdi var þrítugur á þeim tíma. Marteinn fékk tveggja og hálfs árs dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur í nóvember síðastliðnum og áfrýjaði verjandi Marteins, Jón Egilsson, málinu til Hæstaréttar og krafðist þess að dómurinn yrði mildaður. Ríkissaksóknari fór fram á þyngingu dómsins.Var það niðurstaða Hæstaréttar að þyngja dóminn í héraði vegna þess að brotið væri gegn barni yngra en átján ára og sömuleiðis þar sem ákærði rauf skilorð með broti sínu. Þá staðfesti Hæstiréttur eins milljóna króna miskabætur til stúlkunnar úr hendi hins dæma.Hótaði að raka hárið af stúlkunni Var Marteinn sakfelldur fyrir að hafa kynferðismök gegn vilja stúlkunnar með því að beita hana ofbeldi og ólögmætri nauðung en Marteinn þvingaði hana til að hafa við sig munnmök að því er segir í dómnum. Hótaði hann því að raka af henni hárið ef hún veitti honum ekki munnmök og hélt ákærði um höfuð hennar og ýtti henni að getnaðarlim sínum. Í dómi héraðsdóms kemur fram að umrætt kvöld hafi stúlkan verið að aka bílaleigubíl með vinum sínum þegar Marteinn hringdi í hana og skipaði henni að skila bílnum. Fór hún þangað, ræddi við hann og skilaði bíllyklunum. Vinir stúlkunnar komu þá inn í íbúðina. Réðist þá Marteinn á annan þeirra. Eftir slagsmálin kenndi Marteinn stúlkunni um að hafa komið með vini sína inn í íbúðina. Fór hann inn á baðherbergi, sótti rakvél og hótaði stúlkunni. „Þá hefði ákærði sagt við hana að ef hún vildi að hann yrði glaður yrði hún að sjúga hann. Hún hefði neitað því en hann hefði þá haldið uppi rakvélinni og sagst myndu raka af henni hárið ef hún gerði það ekki,“ líkt og segir í dómi héraðsdóms.Neitaði sök en þótti ekki samkvæmur sjálfum sér Hún kvaðst margoft hafa gefið honum til kynna að hún vildi ekki þessi samskipti og að Marteinn hefði haldið höfði hennar þannig að hún hefði ekki getað losað það. Hún hefði hætt þegar hann losaði takið. Marteinn neitaði sök og taldi sig hafa haft kynferðismök við stúlkuna með samþykki hennar og að hennar frumkvæði. Marteinn og stúlkan voru ein til frásagnar af því sem átti sér stað. Við dóm sinn leit héraðsdómur til þess að framburður stúlkunnar hafi verið á einn veg og hafi jafnframt fengið stuðning vitna. Þá hafi Marteinn ekki verð samkvæmur sjálfum sér í lýsingum á atvikum. „Er það niðurstaða dómsins að leggja beri frásögn brotaþola til grundvallar í málinu, en hafna framburði ákærða sem ótrúverðugum. Þykir sannað, gegn neitun ákærða, að hann hafi þvingað brotaþola til kynferðismaka með því að beita hana ofbeldi og ólögmætri nauðung, eins og lýst er í ákæru,“ segir í dómi héraðsdóms. Marteinn á sér nokkra brotasögu en í dómnum segir að „brot ákærða var til þess fallið að valda brotaþola mikilli andlegri vanlíðan, ekki síst í ljósi ungs aldurs hennar. Af framburði stúlkunnar fyrir dóminum þykir jafnframt verða ráðið að verknaðurinn hafi fengið mjög á hana.“
Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Sjá meira