Theresa May kynnir breytingar á heilbrigðisstefnu Íhaldsflokksins Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 22. maí 2017 20:48 Theresa May hefur farið mikinn í kosningabaráttunni. Nordicphotos/AFP
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, hefur tilkynnt breytingar á stefnudrögum Íhaldsflokksins er varða heilbrigðismál þar sem nú er lagt til að þak verði lagt á gjöld sem einstaklingar þurfa að borga fyrir heilbrigðisþjónustu. Útlistanir á stefnu Íhaldsflokksins í heilbrigðismálum fyrir komandi þingkosningar í landinu hafa verið harðlega gagnrýndar af andstæðingum flokksins en áður var lagt til að kostnaðarþáttaka sjúklinga yrði aukin án nokkurs greiðsluþaks. Þá hafa hugmyndirnar jafnframt mælst illa fyrir hjá kjósendum og hafa kannanir sýnt að meirihluti þeirra er á móti hugmyndum um aukna kostnaðarþáttöku sjúklinga. May segir að tillaga um þak á gjöldin sem greidd séu fyrir heilbrigðisþjónustu „sé ekki kúvending“ heldur sé einfaldlega verið að „lagfæra stefnuna.“ May vill ekki gefa upp nákvæmlega hve hátt greiðsluþakið eigi að verða. Hún segir að Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, hafi ekki farið með staðreyndir í gagnrýni sinni á stefnudrögin.Síðan stefnudrögin hafa verið kynnt, hefur Jeremy Corbyn látið út úr sér rangar fullyrðingar. Það eina sem hann hefur upp á að bjóða eru rangar fullyrðingar, ótta og að ala á hræðslu kjósenda. Corbyn hefur farið hörðum orðum um hugmyndir Íhaldsflokksins um aukna kostnaðarþáttöku sjúklinga og meðal annars sagt að um „heilabilunarskatt“ sé að ræða og vísar þar til þess að heilabilaðir munu þurfa að greiða meira fyrir heilbrigðisþjónustu nái hugmyndir Íhaldsflokksins fram að ganga. Hann segir að nýjustu tillögur sem May hafi lagt fram varðandi stefnudrög Íhaldsflokksins breyti í raun og veru mjög litlu hvað varðar stefnu flokksins. May sé einfaldlega að reyna að vinna sér inn hylli kjósenda með því að þykjast hafa breytt því allra óvinsælasta í stefnudrögunum.
Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira