Íslensku liðin vita mótherja sína í Evrópu í dag: FH fær mögulega að hefna sín á Dundalk Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. júní 2017 08:26 Það var skellur fyrir Heimi og FH-inga að fara út í annarri umferð í fyrra. vísir/eyþór
Dregið verður til forkeppni Meistaradeildar Evrópu sem og Evrópudeildarinnar í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss í dag en nú er ljóst hverjum íslensku liðin geta mætt. FH fær mögulega tækifæri til að hefna sín á írsku meisturunum í Dundalk sem skelltu FH óvænt í annarri umferðinni í fyrra. Dundalk upplifði mikið ævintýri í Evrópu á síðasta ári og komst alla leið í riðlakeppni Evrópudeildarinnar sem hefur verið markmið FH-inga um nokkurra ára skeið. Auk þess að geta mætt Dundalk eru í pottinum með FH Vardar frá Makedóníu, Zrinjski frá Bosníu og Hersegóvínu og IFK Mariahamn frá Finnlandi. Í pottinn bætast svo tvö lið sem þurfa að fara í fyrstu umferð forkeppninnar en þau yrðu draumadrátturinn. Þrjú íslensk lið taka þátt í Evrópudeildinni en þar eru KR og Stjarnan í efri styrkleikaflokki og Valur í neðri styrkleikaflokki. KR getur mætt Bangor City frá Wales, Cork City frá Írlandi, Seinajoki frá Finnlandi, Suduva frá Litháen og KÍ Klaksvík frá Færeyjum. Stjarnan getur mætt NSÍ Runavík frá Færeyjum, Liepaja frá Lettlandi, Vaasa frá Finnlandi, Trakai frá Litháen og Shamrock Rovers frá Írlandi. Valsmenn dregist á móti Haugesund frá Noregi, Ventspils frá Lettlandi, Vaduz frá Liechtenstein, Midjylland frá Danmörku og Domzale frá Slóveníu.
Íslenski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 26-24 | Svekkjandi tap í síðasta leik fyrir HM Handbolti Missti öll tíu Ólympíuverðlaun sín í eldunum Sport Frábært mark Trents, fyrsta mark Chiesa og nýtt Liverpool met hjá sextán ára strák Enski boltinn Þórir hefur ekki áhuga Handbolti Freyr sagði já við Brann Fótbolti „Ætla að halda áfram að pumpa væntingarnar“ Handbolti Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Fótbolti Þjálfari Eriku Nóttar meyr eftir að hann sendi hana af stað í ævintýraferð Sport Frækinn sigur Plymouth en þægilegt hjá Chelsea Enski boltinn David Moyes aftur orðinn knattspyrnustjóri Everton Enski boltinn Fleiri fréttir Daninn og Svíinn á skotskónum í sigri Vals Stórsigur hjá KR-ingum Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Alex Þór aftur í Stjörnuna Yfirgefur æskufélagið og semur við Þrótt „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis KA fær lykilmann úr Eyjum Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Brazell ráðinn til Vals Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum „Ég trúi því að frábært geti alltaf orðið ennþá betra“ Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings KA-fólk fær sérútgáfu af bókinni Íslensk knattspyrna í ár Mikil sorg hjá Fram-fjölskyldunni Nauðsynlegt og löngu tímabært Stefán Þór Þórðarson í þjálfarastarf hjá Skagamönnum Fyrirliði Selfoss til liðs við Þróttara Vinna að lagningu gervigrass hafin í Vesturbæ „Hef mínar pælingar sem mér finnst gaman að taka áfram“ Blikar kveðja Damir og óska honum góðs gengis í Brúnei Mist Funa komin heim Víkingar seldu Bjarka Björn til Eyja Mætti syni sínum Sjá meira