Formaðurinn segir stöðu KR óásættanlega en Willum heldur starfinu Tómas Þór Þórðarson skrifar 16. júní 2017 10:56 Willum Þór Þórsson stýrir KR allavega á mánudaginn, svo mikið er víst. vísir/anton brink
Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, á ekki von á uppsagnarbréfi frá knattspyrnudeild félagsins þrátt fyrir dapran árangur í fyrstu sjö umferðum Pepsi-deildarinnar. Liðið tapaði í gær, 3-1, fyrir ÍBV á útivelli. Þetta kemur fram í viðtali við Kristinn Kjærnested, formann knattspyrnudeildar KR, á 433.is þar sem hann er spurður út í stöðu þjálfarans eftir þessa skelfilegu byrjun. Willum kom eins og stormsveipur aftur inn í Pepsi-deildina á síðustu leiktíð og reif KR úr kjallaranum alla leið upp í Evrópusæti. Nú er liðið með sjö stig í tíunda sæti eftir sjö umferðir, tveimur stigum minna en á sama tíma í fyrra. „Staða Willums er örugg. Við vonum að hann og leikmennirnir fyrst fremst fari að snúa þessu við. Staðan er óásættanleg eins og hún er í dag,“ segir Kristinn við 433.is. KR mætir næst Breiðabliki í stórleik í 8. umferð Pepsi-deildarinnar á mánudaginn en verður Willum í vandræðum ef KR tapar þar? „Betur má ef duga skal. Látum það vera lokaorð,“ segir Kristinn Kjærnested. Bjarni Guðjónsson var rekinn sem þjálfari KR í fyrra í níundu umferð en hann var þá búinn að tapa þremur leikjum í röð. Willum er með færri stig en Bjarni á sama tíma í fyrra og er búinn að tapa tveimur leikjum í röð.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍBV - KR 3-1 | Góður sigur Eyjamanna en KR-ingar í vondum málum ÍBV vann góðan 3-1 sigur á KR þegar liðin mættust á Hásteinsvelli í kvöld. 15. júní 2017 21:00 Mest lesið „Hann er sonur minn“ Fótbolti Bein útsending: Uppfært spálíkan skömmu fyrir stórleik Íslands á EM Handbolti Svona var EM-Pallborðið: Allt sem þarf að vita fyrir stórleikinn í dag Handbolti Besta sætið um sóknarleikinn: „Að mínu mati dugar þetta ekki til“ Handbolti Mátti ekki hlaupa maraþonhlaup með barnið sitt á sér Sport Elvar vildi ekki stela fjölskyldubílnum Handbolti Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Handbolti „Hann gæti gert fullt af sóknum léttari“ Handbolti „Ef ég hitti Dag þá mun ég knúsa hann“ Handbolti Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Enski boltinn Fleiri fréttir Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Sjá meira
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍBV - KR 3-1 | Góður sigur Eyjamanna en KR-ingar í vondum málum ÍBV vann góðan 3-1 sigur á KR þegar liðin mættust á Hásteinsvelli í kvöld. 15. júní 2017 21:00