Fella Grindjánar þriðja risann í röð? Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. júní 2017 15:00 Grindavík vann KR í síðustu umferð með sigurmarki Andra Rúnars Bjarnasonar. Vísir/Andri Marinó
Pepsi-deild karla fer aftur af stað í kvöld eftir landsleikjahlé en þrír leikir verða spilaðir í kvöld og þrír á morgun. Stórleikur kvöldsins er viðureign Grindavíkur og FH sem hefst klukkan 20.00 á Grindavíkurvelli en hann verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD klukkan 19.45. Grindjánar eru búnir að fella tvo risa í síðustu tveimur leikjum en þeir unnu KR, 1-0, í síðustu umferð og Val, 1-0, í fimmtu umferðinni. Í heildina er Grindavík búið að vinna þrjá leiki í röð og er í þriðja sæti með þrettán stig, jafnmörg og Stjarnan og Valur á toppi deildarinnar. FH komst upp í fimmta sæti með sigri á Stjörnunni í síðustu umferð en liðið er með níu stig. Það hefur ekki farið alveg nógu vel af stað og gæti verið þriðji risinn sem Grindavík fellir í röð. Annar stór leikur fer fram í Kópavogi þar sem Breiðablik tekur á móti Val. Milos Milojevic byrjaði á tveimur sigrum á móti tveimur neðstu liðum deildarinnar; ÍA og Ólafsvík, en fær nú alvöru prófraun á móti einu besta liði landsins. Skagamenn heimsækja svo KA-menn í leik sem hefst klukkan 19.15 en KA komst aftur á sigurbraut í síðustu umferð þegar liðið pakkaði Ólsurum saman, 4-1. ÍA er aðeins búið að vinna einn leik og þarf sárlega á stigum að halda í kvöld. Vísir fylgist með öllum leikjunum í beinni textalýsingu.Leikir kvöldsins 19.15 Breiðablik - Valur 19.15 KA - ÍA 20.00 Grindavík - FH
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira